Þetta skýrir mögnuðu norðurljósin Eiður Þór Árnason og Smári Jökull Jónsson skrifa 12. janúar 2026 21:56 Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari segir virknina aftur aukast um næstu helgi. Sýn Norðurljós hafa skreytt himininn síðustu kvöld svo eftir hefur verið tekið. Litrík og kvik norðurljósin hafa lokkað landann út í náttúruna líkt og mátti sjá á samfélagsmiðlum enda ansi magnað sjónarspil.
Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari segir ástæðuna fyrir því að norðurljósin hafi verið óvenju lífleg vera þríþætta. „Í fyrsta lagi var rosalega bjart og gott veður þannig að margir sáu en líka vegna þess að það hafði orka hlaðist upp í segulsviðinu okkar sem losnaði úr læðingi þegar það kom kórónugos og skall á jörðinni. Það gerist akkúrat á heppilegum tíma og þess vegna urðu þau svona glæsileg. Það var mikil orka sem losnaði úr læðingi.“ Klippa: Norðurljós hafa skreytt himininn síðustu kvöld Hann segir að sér líði alltaf vel þegar hann sjái norðurljós á himni. Hann hafi vissulega séð þau enn glæsilegri en þau hafi engu að síður verið óskaplega falleg síðustu daga. Það sé gleðiefni að sem flestir hafi orðið vitni að sýningunni. Virknin taki hlé og aukist svo aftur Margir hafa talað um að norðurljósin hafi verið sérstaklega litrík. Sævar segir litarýrðina oft meiri þegar orkan er mikil. „Þegar orkan er há og mikil þá eru meiri líkur á því að það verði falleg litadýrð líka. Þar komum við að því sem heitir norðurljósahviður og það er yfirleitt stundum það sem við þurfum að bíða eftir en þá myndast litirnir fyrst og þá verða þau björt og falleg.“ Norðurljósavirknin er núna aðeins að fjara út að sögn Sævars og má reikna með því að það komi hlé á morgun. Eftir það eigi virknin að aukast aftur um og upp úr næstu helgi.
Geimurinn Norðurljós Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Sjá meira