Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Atli Ísleifsson skrifar 12. janúar 2026 07:15 Gular viðvaranir eru í gildi á sunnan- og austanverðu landinu. Vísir/RAX Alldjúp lægð við Færeyjar beinir norðlægri átt til landsins í dag sem víðast verður 10 til 18 metrar á sekúndu. Á Suðausturlandi og Austfjörðum má hins vegar búast við hvassviðri eða stormi og einnig getur slegið í storm í staðbundnum vindstrengjum á Suðurlandi og við Faxaflóa.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að norðanáttinni fylgi snjókoma eða él víða um land og líkur séu á að færð spillist í skafrenningi fyrir austan. Sunnanlands verður lengst af úrkomulítið. Gular viðvaranir eru í gildi á Suðurlandi, Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum, Suðausturlandi og Miðhálandi fram eftir degi en til morguns á Suðaustur- og Austurlandi. Hringvegurinn á milli Kirkjubæjarklausturs og Hafnar er enn lokaður og stendur til að athuga málið aftur klukkan tíu. Veginum var lokað í gærkvöldi klukkan níu vegna óveðurs sem þar gengur nú yfir. Frost á landinu verður á bilinu núll til sex stig.„Í fyrramálið verður lægðin fyrir norðaustan land og heldur farin að grynnast. Áttin verður því norðvestlæg, víða 13-20 m/s, en hægari vestantil. Nýjustu spár gera ráð fyrir áframhaldandi ofankomu á Norðurlandi, en yfirleitt þurru veðri syðra. Herðir á frosti. Þegar líður á daginn dregur svo smám saman úr vindi,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðvestan 13-20 m/s, en mun hægari um landið vestanvert. Él norðaustanlands, annars þurrt að kalla. Frost 3 til 12 stig. Dregur smám saman úr vindi eftir hádegi. Á miðvikudag: Norðaustlæg eða breytileg átt 5-13. Lítilsháttar snjókoma norðantil, en lengst af þurrt í öðrum landshlutum. Frost 1 til 10 stig. Á fimmtudag og föstudag: Norðvestan og norðan 5-10 og él, en þurrt um landið sunnanvert. Áfram svalt. Á laugardag: Vaxandi suðaustanátt. Hlýnar sunnan- og vestanlands seinnipartinn með slyddu og síðar rigningu, en þurrt um landið norðaustanvert. Á sunnudag: Suðlæg átt og skúrir eða él, en rigning austantil.
Veður Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira