Klappar fyrir ferðalöngunum í óveðrinu Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 9. janúar 2026 12:17 Frá vettvangi í Öræfum á Suðausturlandi í gær. Björgunarsveitin Kári Tugir sátu fastir í bílum sínum klukkustundum saman þegar ofsaveður reið yfir á þjóðvegi 1 milli Jökulsárlóns og Skaftafells í gær. Björgunarsveitir komu um tvö hundruð manns til aðstoðar. Björgunarsveitarmaður ber ferðalanga lofi sem hafi þurft að dúsa í bílum sínum í lengri tíma við erfiðar aðstæður.
Ofsaveðrið skall á nokkuð hratt um hádegisbilið í gær og lenti ferðafólk strax í vanda. Laurent Jegu, björgunarsveitarmaður í björgunarsveitinni Kára í Öræfum, er einn þeirra sem stóðu vaktina í gær frá því fyrstu sveitir voru kallaðar út strax í hádeginu. „Strax eftir Virkisá fundum við nokkra bíla sem voru alveg fastir. Einn var farinn út af veginum, hinn var orðinn fastur með brotna rúðuþurrku,“ segir Laurent. Myndskeið frá vettvangi má sjá að neðan. Hann segir ástandið nærri Sandfelli hafa verið slæmt. „Þá var bara röð af 40 bílum. Þeir voru alveg fastir. Rúta með 18 manns og fullir bílar alls staðar.“ Þeir hafi hafist handa við að tæma bílana á vesturendanum. Björgunarsveit frá Höfn hafi komið úr hinni áttinni og byrjað að tæma frá Hofi. Þeir hafi tæmt bílana hvern á fætur öðrum og selflutt fólkið í fjöldahjálparstöð í Hofgarði. Svona gekk þetta langt fram á kvöld. Björgunarsveitirnar aðstoðuðu um tvö hundruð manns sem margir þurftu að bíða klukkustundum saman eftir aðstoð. „Þau voru búin að bíða í fjóra til fimm tíma eða kannski meira hjá sumum.“ Sumir hafi verið með börn í bílnum, einhverjir veikir og fólk sem þurfti nauðsynlega að komast á klósettið en gat það ekki. Vindurinn var svo mikill, allt upp í 30 til 40 metra á sekúndu, að það leyfði ekki að fara út úr bílnum. Laurent vill hrósa fólkinu fyrir viðbrögð sín í þessum erfiðu aðstæðum. „Gott klapp til þeirra.“ Hann segir flesta hafa verið á ágætlega útbúnum bílum en eftir að fyrsti bíllinn festist hafi fljótt fleiri fylgt í kjölfarið. „Það var svo mikill skaflrenningur. Um leið og það er einn bíll sem er fastur þá safnast snjór í kringum þann bíl svo hann er meira og meira fastur og ekki alltaf hægt að komast fram hjá.“ Snjóskaflarnir hafi stækkað og aðstæður verið erfiðar. Vegurinn hefur verið opnaður á ný en enn á eftir að fjarlægja einhverja bíla sem eru úti í vegkanti. En einhverjir þeirra urðu rafmagns- eða bensínlausir í gær. „Það er fólk að keyra og enginn snjór á veginum. Það er búið að moka snjóinn,“ sagði Laurent.
Björgunarsveitir Sveitarfélagið Hornafjörður Mýrdalshreppur Ferðaþjónusta Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira