Ágúst vann tvöfalt á hófi Íþróttamanns ársins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2026 20:50 Ágúst Þór Jóhannsson tekur við verðlaunum sínum í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Ágúst Þór Jóhannsson var sigursæll á hófi Samtaka Íþróttafréttamanna í Hörpu í kvöld þar sem lýst var kjöri Íþróttamanns ársins 2025. Ágúst vann tvenn verðlaun.
Ágúst var bæði kjörinn þjálfari ársins og þá fékk liðið sem hann þjálfaði, kvennalið Vals í handbolta, útnefninguna lið ársins. Ágúst er nú fyrrverandi þjálfari Valskvenna en hann hætti með liðið í sumar og tók í staðinn við karlaliði Vals sem er á toppi Olís-deildar karla um áramótin. Þrefaldir meistarar Ágúst gerði Valskonur að fjórföldum meisturum á síðasta tímabili, 2024-25. Kvennalið Vals vann Íslandsmeistaratitilinn þrjú síðustu tímabil hans með liðið og fjórum sinnum alls undir hans stjórn. Liðið varð Íslandsmeistari og deildarmeistari en kórónaði síðan magnað tímabil með því að vera fyrsta íslenska kvennaliðið til að verða Evrópumeistari. Valsliðið varð Evrópubikarmeistari eftir eins marks 25-24 sigur á Porrino frá Spáni í seinni úrslitaleik félaganna sem var spilaður á Hlíðarenda. Efstu í kjörinu Annar í kjörinu á þjálfara ársins varð Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu í handbolta. Ágúst hlaut 97 stig en Dagur fékk 71 stig. Heimir Hallgrímsson, þjálfari írska karlalandsliðsins í fótbolta, varð síðan þriðji með 38 stig. Kvennalið Breiðabliks í fótbolta, sem vann þrefalt eins og Valur, varð í öðru sæti í kjörinu á liði ársins. Valur fékk þó yfirburakosningu eða 123 stig á móti 64 stigum hjá Blikunum. Karlalið Fram í handbolta varð síðan í þriðja sætinu með 44 stig. Fulltrúar kvennaliðs Vals taka við verðlaununum en þetta eru þær Hildigunnur Einardóttir, Hildur Björnsdóttir, Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Lovísa Thomsen og Hafdís Renötudóttir.Vísir/Hulda Margrét
Íþróttamaður ársins Handbolti Valur Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira