Pep segir að Rodri hafi breytt leiknum þegar hann kom inn á Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2026 07:30 Rodri er mættur á ný eftir langvinn og erfið meiðsli og það boðar ekki gott fyrir mótherja Manchester City. Getty/Scott Llewellyn Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, sagði að Rodri hefði sýnt Manchester City hvað liðið hefði saknað í eitt og hálft ár eftir frammistöðu miðjumannsins sem varamanns í markalausu jafntefli gegn Sunderland á nýársdag.
Að City hafi ekki tekist að tryggja sér öll þrjú stigin dró úr möguleikum þeirra á titlinum og gerði Arsenal kleift að hefja árið 2026 með fjögurra stiga forskot á lið Guardiola á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Þrátt fyrir stigamissinn færði frammistaða Rodri í seinni hálfleik, eftir að hafa komið inn á fyrir hinn meidda Nico González, ró og yfirvegun inn á miðju City. Guardiola sagði að það væri lykilatriði fyrir City að spænski landsliðsmaðurinn, sem hefur aðeins byrjað fjóra deildarleiki síðan hann sneri aftur eftir krossbandameiðsli í september 2024, haldist nú heill heilsu og hjálpi liðinu á seinni hluta tímabilsins. „Hann [Rodri] breytti leiknum,“ sagði Guardiola við fréttamenn á blaðamannafundi eftir leikinn á Leikvangi ljóssins. „Hann sannaði á 45 mínútum að hann er bestur í sinni stöðu,“ sagði Guardiola. „Fótbolti snýst um leikmennina – við áttum í erfiðleikum með uppspilið en með Rodri áttum við í minni erfiðleikum,“ sagði Guardiola. „Hann braut línurnar, við hreyfðum okkur betur og í eitt og hálft ár án hans höfum við saknað hans mikið,“ sagði Guardiola. „Vonandi helst hann heill heilsu því hann gerir okkur að betra liði,“ sagði Guardiola. Það eru líka margir sem taka undir það enda hlaut Rodri Gullhnötinn fyrir tveimur árum eða á síðustu heilu tímabilunum áður en hann meiddist.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Fótbolti Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ Fótbolti Hversu heitt er sætið hans Lárusar Orra? Sport „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira