Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2026 08:01 Hinn sextán ára Emanuele Galeppini lést í brunanum í Sviss. @emanuele.galeppini Meðal fórnarlamba eldsvoðans sem braust út á nýársnótt í Crans Montana í Sviss var efnilegur kylfingur.
Hinn sextán ára Emanuele Galeppini er meðal þeirra óheppnu sem brunnu inni þegar nýárspartýið breyttist í martröð eftir að eldur braust út og breiddist út á augabragði. Ítalska golfsambandið birti samúðarkveðju á vefsíðu sinni og á samfélagsmiðlum „Ítalska golfsambandið syrgir fráfall Emanuele Galeppini, ungs íþróttamanns sem bar með sér ástríðu og sönn gildi,“ segir í yfirlýsingunni. „Á þessari miklu sorgarstundu eru hugsanir okkar hjá fjölskyldu hans og öllum þeim sem þótti vænt um hann. Emanuele, þú munt að eilífu lifa í hjörtum okkar.“ Næstum því fimmtíu manns létust í eldinum sem kom upp á gamlárskvöld á barnum Le Constellation í Crans-Montana. Lögreglan í Valais staðfesti síðan að um fjörutíu hefðu látist í eldsvoðanum, sem talinn er hafa valdið sprengingu, og um 115 manns hefðu slasast. Heildarfjöldi fórnarlamba hefur síðan hækkað í 47 en enn á eftir að bera kennsl á fimm fórnarlömb samkvæmt nýjustu fréttum. Það má búast við að tala látinna gæti hækkað enn frekar enda margir mjög illa slasaðir. Stéphane Ganzer, yfirmaður öryggismála í kantónunni Valais, sagði í franska þættinum RTL Matin að „á milli áttatíu og hundrað manns af þeim sem slösuðust í brunanum væru í lífshættu. View this post on Instagram A post shared by La Gazzetta dello Sport (@gazzettadellosport)
Golf Sviss Eldsvoði á skemmtistað í Sviss á nýársnótt Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira