Brennan Johnson er orðinn leikmaður Crystal Palace Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2026 18:03 Brennan Johnson gæti spilað með Crystal Palace um helgina en Oliver Glasner, stjóra Palace, var fljótur að sannfæra hann um að koma. @CPFC Velski knattspyrnumaðurinn Brennan Johnson verður að öllum líkindum í leikmannahópi Crystal Palace á sunnudag eftir að félagaskipti framherjans frá Tottenham fyrir metfé, 35 milljónir punda, gengu í gegn á föstudag.
Bournemouth hafði einnig áhuga á að fá velska landsliðsmanninn í stað Antoine Semenyo, sem er á óskalista Manchester City. En eftir viðræður við Oliver Glasner, stjóra Palace, á fimmtudag sannfærðist Johnson um að ganga til liðs við félagið á Selhurst Park. „Ég er virkilega spenntur og mjög ánægður,“ sagði þessi 24 ára leikmaður við heimasíðu Palace. From North London to South.We are delighted to announce the signing of Brennan Johnson from Tottenham Hotspur ❤️💙— Crystal Palace F.C. (@CPFC) January 2, 2026 „Crystal Palace er frábært félag, félag sem ég hef alltaf litið upp til,“ sagði Johnson. „Þetta er frábær tímapunktur fyrir mig til að koma hingað og taka þátt í vegferðinni sem þetta félag er á. Ég er gríðarlega spenntur,“ sagði Johnson. Koma Johnsons slær út 27 milljón punda metið sem Ernirnir greiddu fyrir Christian Benteke, framherja Liverpool, árið 2016. Hann gekk til liðs við Tottenham frá Nottingham Forest árið 2023 fyrir 47,5 milljónir punda og skoraði sigurmarkið þegar félagið batt enda á sautján ára bið sína eftir titli með sigri í Evrópudeildinni á síðasta tímabili. Spiltími Johnsons hefur verið takmarkaður undir stjórn Thomas Frank, stjóra Spurs, á þessu tímabili en framherjinn hefur skorað fjögur mörk í 22 leikjum. Oliver Glasner on the signing of Brennan Johnson ✊ pic.twitter.com/Ie8u9hiroR— Crystal Palace F.C. (@CPFC) January 2, 2026
Enski boltinn Crystal Palace FC Tottenham Hotspur Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Sjá meira