„Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 27. desember 2025 13:05 Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Ísland í ræðustól á fundinum á Flúðum. Magnús Hlynur Hreiðarsson „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir, sem skila raunverulegum árangri í loftlagsmálum”, segir formaður Bændasamtakanna og bætir við að það hafi verið jákvæð skref í vetur þegar veittur var fjárfestingastuðningur til ylræktarbænda til að draga úr orkukostnaði.
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna var nýlega með fundarherferð um landið þar sem hann og nokkrir starfsmenn samtakanna funduðu með bænum um málefni landbúnaðarins. Loftlagsmálin voru ofarlega á baugi hjá Trausta. „Og breytingin, sem hefur orðið á allri umræðu við stjórnvöld, þá á ég sérstaklega við Jóhann Pál, umhverfis- og loftlagsráðherra að fyrir ekki mörgum árum snerist öll umræða um loftslagsmálin um skatta og landbúnað. Í dag erum við hins vegar í samtali við þennan ráðherra, ágæta ráðherra, sem er hinn uppáhalds ráðherrann okkar, að fá fjármagn, að það verði bara farið í eins og hann segir sjálfur, raunverulegar aðgerðir, sem skila raunverulegum árangri,” sagði Trausti á fundi á Flúðum en hér vísar hann í ylræktarbændur, sem rækta grænmeti í gróðurhúsum sínum. Fundurinn var vel sóttur af bændum.Magnús Hlynur Hreiðarsson „Hann tók nú fyrsta skrefið í því í vetur þegar hann veitti fjárfestingastuðning í ylræktina til þess að draga úr orkukostnaði og þetta eru jákvæð skref. Þetta eru kannski ekkert endilega stærstu skrefin í upphafi en það skiptir máli að fá gott veður og halda áfram að vinna og stærsta atriðið í þessu er að geta verið á þeim stað að ráðuneyti, séu ekki að taka ákvörðun um starfsskilyrði landbúnaðarins án okkar aðkomu,” bætti Trausti við í ræðu sinni. Hressir og kátir bændur úr uppsveitum Árnessýslu á fundinum.Magnús Hlynur Hreiðarsson Ein af glærunum frá Traust á fundinum.Magnús Hlynur Hreiðarsson Forsvarsmenn Bændasamtakanna og Hrunamannahrepps á fundinum á Flúðum.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Landbúnaður Loftslagsmál Hrunamannahreppur Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Sjá meira