Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Valur Páll Eiríksson skrifar 27. desember 2025 11:16 Heimir vill hleypa færri gestum að á heimavelli Íra. Hér er hann ásamt Guðmundi Hreiðarssyni, sem er markvarðaþjálfari írska liðsins. Vísir/Getty Írska knattspyrnusambandið er með til skoðunar að fækka stuðningsmönnum gestaliða á Aviva-vellinum í Dublin eftir tillögu landsliðsþjálfarans Heimis Hallgrímssonar.
Heimir stýrði Írum í umspil um sæti á HM næsta sumar á dramatískan máta í síðasta landsliðsglugga í nóvember. Írar unnu þar frækinn sigur á Portúgal áður en þeir lögðu Ungverja í úrslitaleik um umspilssæti með marki á ögurstundu. Heimir lét hafa eftir sér í kjölfar þess að Írar tryggðu sæti sitt á erfiðum útivelli í Búdapest að skoða ætti að hleypa færri stuðningsmönnum gesta að í Dublin, þar sem fáir Írar hefðu komist að í Ungverjalandi. Fáir eru eins gestrisnir og Írar þegar kemur að hlutfallslegum fjölda sæta sem stuðningsmönnum gestaliða býðst. Aviva-völlurinn, sem liðið leikur heimaleiki sína á, tekur rúmlega 50 þúsund manns í sæti en öll norðurstúka vallarins er tekin frá fyrir gesti. Fyrst og fremst er það að líkindum af praktískum ástæðum, þar sem auðveldara er að halda utan um hóp í einni og sömu stúkunni, í stað þess að skipta henni upp. Heimir vakti athygli á því að írskir stuðningsmenn í Búdapest hefðu fengið lítið afgirt svæði efst uppi í rjáfri. Slík er raunin víðast hvar sem Írar spila útileiki sína - svipað var uppi á teningunum þegar Ísland mætti Úkraínu í Póllandi í sama glugga - íslensku stuðningsmennirnir fengu sæti ofarlega í litlum hluta stúkunnar. „Gestrisni Íra er mikil, að gefa gestunum bestu sæti hússins. Svo við gætum þurft að endurskoða það, sérstaklega ef við spilum heimaleik með HM-sæti undir sem færi ef til vill í vítaspyrnukeppni með gestina í heilli stúku aftan annars marksins,“ sagði Heimir eftir landsliðsgluggann í nóvember. „Við þurfum að hugsa um alla litlu hlutina sem geta verið okkur hagstæðir,“ sagði Heimir enn fremur. Írska knattspyrnusambandið er sagt hafa tekið tillögu hans til greina og skoða nú útfærslur á því fyrir komandi leiki. Írar mæta Tékkum í Prag í undanúrslitum umspilsins þann 26. mars. Vinni þeir þann leik eiga þeir úrslitaleik um HM-sæti við annað hvort Danmörku eða Norður-Makedóníu fimm dögum síðar á Aviva-vellinum. Það má því vel vera að það reyni á að Írar fari í vítakeppni með HM-sæti undir í mars næstkomandi.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Fleiri fréttir Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Sjá meira