Sektaður um hundruð þúsunda fyrir að sparka í hund Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 23. desember 2025 11:20 Hundinum var komið í umsjón annars. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty Einstaklingur var sektaður um 240 þúsund krónur fyrir að beita hund ofbeldi, þar á meðal að sparka ítrekað í hann. Mast sektaði fjölda dýraeigenda fyrir vanbúnað en vegna þess þurfti að aflífa fjölda dýra.
Viðkomandi hafði tímabundið umráð yfir hundatík. Hann gerðist sekur um að kippa í taum tíkarinnar, traðka með fæti á höfði og sparka að lokum ítrekað í vinstri síðu og búk hennar. Eigandi hundsins féllst á að hundinum væri komið í hendur annarra. Þetta kemur fram í nýbirtum stjórnvaldsákvörðunum Mast í dýravelferðarmálum. Ákvarðanirnar voru teknar í ágúst, september og október. Annar umráðamaður hunds var síðan sektaður um 270 þúsund krónur fyrir að draga fram úr hófi með að fara með hann til dýralæknis. Hundurinn var að lokum aflífaður. Einnig taldi Mast að brotið hefði verið á velferð kattar, til að mynda með vanfóðrun. Eigandanum var gert að greiða 195 þúsund króna sekt og var kettinum komið í hendur annarra. Kalla þurfti til lögreglu til að fjarlægja snáka af heimili manns. Maðurinn var síðar kærður til lögreglu enda er ekki heimilt að flytja snáka inn til landsins. Nautgripabóndi var einnig sektaður um 520 þúsund krónur fyrir að brjóta á velferð nautgripa með vanfóðrun þeirra og fyrir að fresta því of lengi að leita til dýralæknis vegna sjúkra eða slasaðra dýra. Þá var sauðfjárbóndi sviptur vörslum bústofns síns. Mast taldi að hann skorti bæði getu, hæfni og ábyrgð til að halda um féð en því var öllu slátrað.
Matvælastofnun Gæludýr Hundar Kettir Dýr Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira