Íslandsvinurinn rekinn Valur Páll Eiríksson skrifar 5. desember 2025 12:01 Bo Henriksen var rekinn frá Mainz. Andrew Kearns - CameraSport via Getty Images Bo Henriksen hefur verið vísað úr þjálfarastarfi Mainz í þýsku úrvalsdeildinni. Hann stýrði liðinu í tæp tvö ár.
Mainz hefur farið agalega af stað í þýsku úrvalsdeildinni og situr fast á botni deildarinnar með sex stig, þremur stigum frá öruggu sæti. Liðið hefur aðeins unnið einn leik af tólf það sem af er vetri. 4-0 tap fyrir Freiburg síðustu helgi reyndist síðasti naglinn í kistu Danans Henriksen sem hafði stýrt Mainz frá því í febrúar 2024. Henriksen spilaði á Íslandi tvö sumur, með Val og Fram sumarið 2005, og með ÍBV sumarið 2006. Hann eygði þá endurkomu til Íslands í fyrra en hann er einn þeirra sem sótti um landsliðsþjálfarastarf karla eftir brotthvarf Norðmannsins Age Hareide. Hann var einn þriggja aðila sem voru boðaðir í starfsviðtal af KSÍ auk Freys Alexanderssonar og Arnars Gunnlaugssonar en sá síðastnefndi hreppti hnossið. Henriksen hóf þjálfaraferil sinn fljótlega eftir að hann yfirgaf klakann sumarið 2006. Hann tók þá við Bronhöj í heimalandinu og stýrði í átta ár. Hann var þá þjálfari Horsens frá 2014 til 2020 þar sem Kjartan Henry Finnbogason var lærisveinn hans. Daninn gerði þá Midtjylland að dönskum bikarmeisturum árið 2022 og tók í kjölfarið við Zurich í Sviss áður en hann færði sig til Mainz í febrúar í fyrra. Benjamin Hoffmann stýrir Mainz tímabundið meðan liðið leitar nýs þjálfara. Hann verður á hliðarlínunni þegar Mainz mætir Borussia Mönchengladbach í kvöld.
Þýski boltinn Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met Sjá meira