Sjötta tap Framara í röð en Birgir Steinn í Evrópustuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. desember 2025 19:17 Birgir Steinn Jónsson átti góðan leik með Sävehof í kvöld IK Sävehof Framarar enduðu Evrópudeildina í ár stigalausir á botni síns riðils eftir skell í lokaleiknum í Noregi í kvöld. Birgir Steinn Jónsson átti hins vegar flott Evrópukvöld.
Norska félagið Elverum vann fjórtán marka sigur á Fram, 38-24, eftir að hafa verið 23-11 yfir í hálfleik. Norðmennirnir skoruðu fjögur fyrstu mörk leiksins og svo sáust tölur eins og 8-3, 13-6 og 19-8 í fyrri hálfleiknum. Max Emil Stenlund var markahæstur hjá Fram með átta mörk en Viktor Sigurðsson skoraði sex mörk. Dánjal Ragnarsson var síðan með þrjú mörk. Tryggvi Þórisson tók eitt skot fyrir Elverum en klikkaði á því. Íslandsmeistararnir töpuðu öllum sex leikjum sínum en það var barátta um efstu tvö sætin milli hinna liðanna í riðlinum. Porto sá hins vegar til þess að Elverum komst áfram því portúgalska liðið vann á sama tíma nítján marka stórsigur á Kriens, 44-25, á útivelli. Kriens situr því eftir en Elverum og Porto fara áfram. Birgir Steinn Jónsson skoraði sjö mörk og var markahæstur í sínu liði þegar Sävehof vann fjögurra marka útisigur á danska félaginu Fredericia, 33-29. David Sandberg skoraði líka sjö mörk. Birgir var sjóðheitur framan af leik en klikkaði á þremur síðustu skotum sínum í leiknum. Birgir átti líka fjórar stoðsendingar og koma því að ellefu mörkum.
Evrópudeild karla í handbolta Mest lesið Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Svartfjallaland 28-27 | Fyrstu stigin komu gegn toppliðinu Handbolti Þjálfari Lakers gerir lítið úr rifrildinu við Doncic Körfubolti City missti tvisvar niður forystu gegn Forest Enski boltinn Skytturnar styrktu stöðu sína á toppnum Enski boltinn Harry Maguire sakfelldur í Grikklandi Enski boltinn Joao Pedro sá um svakalegan viðsnúning Enski boltinn „Það var í raun ekkert merkilegt, ég var ekkert að æsa mig“ Sport Orri á leið í bikarúrslitaleik Fótbolti Svona virkar nýja rangstöðuregla Wengers Enski boltinn Fleiri fréttir Færeyingar unnu sterkan varnarsigur gegn Portúgal „Ógeðslega gaman og ég er ógeðslega ánægð með allar“ „Að vera í þessum íþróttum er stanslaus þjáning“ Engin bikarþynnka hjá Haukum „Það var engin hætta“ Uppgjörið: Ísland - Svartfjallaland 28-27 | Fyrstu stigin komu gegn toppliðinu Norðmenn skipta út landsliðsþjálfaranum sínum „Mér finnst við eiga mikið inni“ Átta ára hark á enda „Við ætlum að spóla upp þessa brekku“ Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Einar Bragi öflugur í mikilvægum Evrópusigri Elliði í liði umferðarinnar eftir mörkin níu gegn Kiel Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu „Leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum“ Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Sigur hjá Ými en dýrt tap hjá Blæ Sigvaldi á leið í faðm Guðjóns Vals eða Heiðmars? Myndasyrpa: Haukar fögnuðu á heimavelli „Þetta er súrrealísk tilfinning“ „Fyrst og fremst stoltur af leikmönnum liðsins“ „Rætt á fyrsta fundi að stefnt væri að titlum“ Elliði markahæstur í frábærum sigri Uppgjörið: Haukar - ÍR 28-21 | Haukar of stór biti fyrir ÍR Flautumark tryggði Íslendingaliðinu sigur „Með þessa sigurhefð sem við þurfum að búa til“ „Algjör rússibani“ Sjá meira