Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Sindri Sverrisson skrifar 2. október 2026 07:54 Viktor Gísli Hallgrímsson varð að sætta sig við silfur á HM. Getty/Vitalii Kliuiev Viktor Gísli Hallgrímsson stóð í marki Barcelona hálfan leikinn gegn ungverska liðinu Veszprém í úrslitaleik HM félagsliða í handbolta í Egyptalandi í gær. Hans gamli samstarfsmaður reyndist maður leiksins og var valinn mikilvægastur á mótinu. Viktor og Janus Daði Smárason urðu að sætta sig við silfur.
Veszprém vann stórsigur í úrslitaleiknum, 42-33, og var danski landsliðsmarkvörðurinn Emil Nielsen valinn maður leiksins en hann varði 12 af 42 skotum sem hann fékk á sig, samkvæmt leikskýrslu IHF. Nielsen fór frá Barcelona til Veszprém í sumar og reyndist sínum gömlu liðsfélögum erfiður. Hann var svo valinn mikilvægasti maður mótsins. Viktor Gísli deilir nú markvarðarstöðunni með spænska landsliðsmarkverðinum Sergey Hernández og áttu þeir svipaða frammistöðu í gær. Viktor Gísli varði 4 af 23 skotum, eða 17%, á meðan að Hernández varði 4 af 25 skotum sem hann fékk á sig, eða 16%. Janus Daði kom til Barcelona í sumar frá erkifjendum Veszprém í Pick Szeged og átti tvö skot í leiknum en skoraði ekki. Franski hornamaðurinn Hugo Descat var markahæstur í leiknum með tíu mörk úr ellefu skotum og Nedim Remili skoraði átta mörk. Hjá Börsungum var Timothey N‘Guessan markahæstur með níu mörk úr þrettán skotum. Descat endaði markahæstur á mótinu með 35 mörk en þeir Nielsen voru hins vegar ekki valdir í stjörnulið mótsins. Hefð er fyrir því í handboltanum að mikilvægasti leikmaðurinn sé ekki líka í stjörnuliðinu og var kollegi Viktors Gísla, Hernández, valinn sem markvörður í stjörnuliðið. Stjörnuliðið á HM félagsliða 2026: Markvörður: Sergey Hernández Ferrer (FC Barcelona) Hægra horn: Yanis Lenne (Veszprém HC) Hægri skytta: Youssef Ahmed (Zamalek Club) Miðja: Mohamed Hesham (Al Ahly) Vinstri skytta: Ahmed Hesham (Veszprém HC) Vinstra horn: Ian Barrufet Torrebejano (FC Barcelona) Línumaður: Ludovic Fàbregas (FC Barcelona) Dýrmætasti leikmaður: Emil Nielsen (Veszprém HC) Markahæstur: Hugo Descat (Veszprém HC) – 35 goals
Handbolti Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira