Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Aron Guðmundsson skrifar 5. október 2026 11:18 Gylfi Þór Sigurðsson er tilbúinn að leggja allt í sölurnar fyrir íslenska landsliðið. vísir/Anton Vísir heilsar frá Tallinn í dag þar sem fram undan er leikur Íslands gegn heimamönnum í landsliði Eistlands í Þjóðadeildinni í fótbolta á morgun. Íslenska landsliðið er á góðu skriði og spenna að byggjast upp. Staðan á Gylfa Þór Sigurðssyni og staða Arnars Gunnlaugssonar var til umræðu í þætti dagsins.
Aron Guðmundsson, íþróttafréttamaður Sýnar, ræddi við sérfræðingana Guðmund Benediktsson og Kjartan Henry Finnbogason um komandi leik, stöðuna á landsliðinu sem hefur tengt saman sigra í keppnisleikjum í fyrsta sinn frá 2019 og ótrúlegan vilja sem laskaður Gylfi Þór Sigurðsson hefur sýnt í aðdraganda leiksins. Klippa: Strákarnir ferskir í Tallinn: „Brynja ég elska þig“ „Gylfi hefur sýnt það og sannað í þessum glugga að hann hefur enn ýmislegt fram að færa í íslenska landsliðinu,“ sagði Guðmundur Benediktsson í þætti dagsins. „Hann er búinn að vera meiddur. Ég held hann hafi rifbeinsbrotnað gegn KR í fyrri leik Víkinga gegn KR fyrir ekki svo löngu síðan. Hann hefur verið að spila með brynju. Brynja, ég elska þig.“ Eistar hafa komið nokkuð á óvart í riðli Íslands til þessa og ljóst er að sigurliðið á morgun mun verma toppsæti riðilsins fram að næsta landsliðsverkefni. Sigur Íslands færi langt með að tryggja strákunum okkar efsta sætið og farmiða í B-deildina. Þátt dagsins má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni. Vísir færir ykkur öll helstu tíðindi af íslenska landsliðinu í Eistlandi. Við verðum með beina útsendingu frá blaðamannafundi liðsins klukkan korter yfir tvö seinna í dag. Landsleikur Eistlands og Íslands í Þjóðadeild UEFA hefst klukkan korter í sjö annað kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn Sport.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Eistland Mest lesið Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira