Fyrrverandi utanríkismálastjóri ESB handtekinn Kjartan Kjartansson skrifar 2. desember 2025 13:13 Federica Mogherini er rektor Evrópuháskólans en var áður utanríkismálastjóri ESB. Rannsókn stendur yfir á því hvort að Evrópuháskólinn hafi fengið verkefni fyrir utanríkisþjónustuna á ólöglegan hátt. Vísir/EPA Federica Mogherini, fyrrverandi utanríkismálstjóri Evrópusambandsins, er sögð ein þriggja einstaklinga sem voru handteknir í aðgerðum belgísku lögreglunnar í dag. Húsleit var einnig gerð hjá utanríkisþjónustu sambandsins en aðgerðirnar eru sagðar tengjast rannsókn á meintu misferli í útboði.
Húsleit var einnig gerð hjá Evrópuháskólanum í Brugge og á heimilum nokkurra einstaklinga, að sögn embættis saksóknara Evrópusambandsins. Embættið nafngreindi ekki þá handteknu en AFP-fréttaveitan hefur eftir heimildum sínum að Mogherini sé á meðal þeirra. Hún er núverandi rektor Evrópuháskólans. Þá segir Politico að Stefano Sannino, ítalskur embættismaður sem er yfir málefnum Miðausturlanda, Norður-Afríku og Persaflóa hjá framkvæmdastjórn ESB, hafi verið handtekinn. Þriðji maðurinn sé stjórnandi hjá Evrópuháskólanum. Aðgerðirnar tengjast rannsókn á svonefndum diplómataskóla Evrópusambandsins sem þjálfar unga erindreka og misferli með fjármuni sambandsins í tengslum við útboð vegna starfsemi hans. Utanríkisþjónusta ESB bauð þjálfunarverkefnið út fyrir tímabilið 2021 til 2022 og hlaut Evrópuháskólinn hnossið. Saksóknaraembættið segist hafa „sterkar grunsemdir“ um að útboðsferlið hafi ekki verið í samræmi við samkeppnislög. Langir skuggar við Berlaymont-bygginguna sem hýsir meðal annars utanríkisþjónustu Evrópusambandsins í Brussel. Svo virðist sem að myrkaverk hafi verið framin þar í tengslum við útboð fyrir nokkrum árum.Vísir/EPA Þannig sé rökstuddur grunur uppi um að fulltrúar Evrópuháskólans hafi fengið pata af kröfunum sem gerðar yrðu til verktaka áður en verkefnið var boðið út. Rannsóknin beinist einnig að því hvort að háskólinn hafi haft ástæðu til að ætla að hann fengi verkefnið, jafnvel áður en útboðið var auglýst. Blaðið Politico hefur eftir háttsettum embættismanni hjá ESB að rannsókn á útboðinu hafi verið hafin áður en Kaja Kallas, núverandi utanríkismálastjóri sambandsins, tók við embætti. Evrópuháskólinn býður upp á undirbúningsnám fyrir íbúa aðildarríkja sambandsins sem hyggja á feril innan evrópska stjórnkerfisins. Mogherini var utanríkismálastjóri ESB frá 2014 til 2019 en tók við sem rektor Evrópuháskólans árið 2020. Áður var hún utanríkisráðherra í ríkisstjórn Matteo Renzi á Ítalíu árið 2014. Fréttin hefur verið uppfærð.
Evrópusambandið Belgía Erlend sakamál Ítalía Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira