Patti Smith heldur tónleika í Hörpu og Hofi Magnús Jochum Pálsson skrifar 25. nóvember 2025 13:57 Patti Smith hefur oft komið áður til Íslands að halda tónleika en nú er nokkuð liðið síðan síðast. Getty Tónlistarkonan Patti Smith kemur til Íslands næsta sumar og mun troða upp með hljómsveit sinni á tvennum tónleikum, í Hörpu og í Hofi.
Þetta kemur fram í tilkynningu skipuleggjandans Tónleiks. Þar segir að fyrri tónleikarnir verði í Eldborg í Hörpu sunnudaginn 31. maí og þeir seinni verði þriðjudaginn 2. júní í Hofi á Akureyri. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Patti Smith heldur tónleika á Íslandi. Hún kom fram á Nasa árið 2005 og í Háskólabíó árið eftir. Þá tróð hún upp á tónleikunum Stopp - gætum garðsins! í Hörpu árið 2014, hélt 40 ára afmælistónleika Horses í Hörpu árið 2015 og kom fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice árið 2019. Og íslenskir tónleikagestir virðast aldrei fá nóg. Patti Smith er algjör goðsögn.Tom Dumont Patti Smith þarf vart að kynna fyrir lesendum en hún er einn áhrifamesti listamaður sinnar samtíðar. Smith er allt í senn söngkona, lagasmiður, ljóðskáld og myndlistarkona en hún sló í gegn plötunni Horses árið 1975. Smith hefur gefið út meira en tíu plötur á ferli sínum, fleiri tugi bóka og sýnt myndlistarsýningar um allan heim. Smith hefur verið margverðlaunuð og heiðruð fyrir verk sín, var innlimuð í frægðarhöll rokksins árið 2007, hlaut bandarísku bókmenntaverðlaunin árið 2010 fyrir endurminningarnar Just Kids og var sæmd Ordre national de la Légion d'honneur, æðstu orðu Frakklands á sviði lista og bókmennta, árið 2022. Miðasala á tónleikana hefst 2. desember en hægt er að kaupa þá á vefsíðum staðarhaldara.
Tónleikar á Íslandi Tónlist Harpa Akureyri Reykjavík Mest lesið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira