Ítalski baróninn lagði landeigendur Árni Sæberg skrifar 25. nóvember 2025 11:31 Séð yfir Hvalárfoss og ósa Hvalár. Ófeigsfjörður í baksýn. EGILL AÐALSTEINSSON Hæstiréttur staðfesti í gær landamerki jarðarinnar Drangavíkur í Árneshreppi gagnvart jörðunum Engjanesi, Ófeigsfirði og Laugalandi í máli eigenda Drangavíkur á hendur ítalska baróninum Felix von Longo-Liebenstein, eiganda Engjaness, og fleirum, sem fóru með sigur af hólmi á öllum dómstigum. Tveir af fimm dómurum í málinu skiluðu sératkvæði og töldu að fallast hefði átt á kröfur eigenda Drangavíkur í öllu verulegu.
Forsaga málsins er sú að hluti eigenda jarðarinnar Drangavíkur höfðaði mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, meðal annars á hendur baróninum, og krafðist þess að viðurkennt yrði að landamerki jarðarinnar næðu yfir hluta lands jarðanna Engjaness og Ófeigsfjarðar. Ríkinu var stefnt til réttargæslu í málinu en með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur var baróninn sýknaður í aðalsök í málinu. Dómurinn var staðfestur um landamerki jarðanna Engjaness og Drangavíkur með dómi Landsréttar í júní 2024. Landamerkjabréf fáorð Í dómi Hæstaréttar segir að kjarni ágreinings aðila fyrir Hæstarétti hafi lotið að því hvernig bæri að skýra tilvísun landamerkjabréfanna til Eyvindarfjarðarár og hver hefðu verið upptök árinnar á ritunartíma þeirra. Hæstiréttur hafi talið bréfin afar fáorð um mörk inn til landsins og að nauðsynlegt væri að horfa til annarra heimilda en bréfanna sjálfra. Þær hafi geymt lýsingu sem nota mætti við mat á merkjum jarðanna, staðháttum sem og upplýsingum um notkun landsins. Þá hafi að teknu tilliti til staðhátta og venju á viðkomandi svæði líkt og í hinum áfrýjaða dómi verið miðað við að með orðunum „eptir hæstu fjallsbrún“ í landamerkjabréfi Engjaness væri átt við vatnaskil. Vötnin tóku ekki að myndast fyrr en upp úr 1914 Við úrlausn málsins hafi einnig verið lagt til grundvallar með vísan til ýmissa ritaðra heimilda um staðhætti og korta sem gerð voru nærri landamerkjabréfunum í tíma að Eyvindarfjarðará hefði á ritunartíma bréfanna komið upp í tveimur kvíslum norðarlega á Ófeigsfjarðarheiði þaðan sem hún hefði runnið í farvegi til sjávar. Jafnframt hafi verið talið að Efra- og Neðra Eyvindarfjarðarvatn hefðu ekki tekið að myndast fyrr en Drangajökull tók að hopa upp úr árinu 1914. Að þessu virtu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms hafi hann verið staðfestur um landamerki jarðanna Drangavíkur og Engjaness. Niðurstaða Hæstaréttar hefur talsverða þýðingu fyrir framkvæmdir við fyrirhugaða Hvalárvirkjun á svæðinu, enda hefði önnur niðurstaða þýtt að eigendur Drangavíkur hefðu átt hlut í Eyvindarfjarðará, einni þriggja áa sem til stendur að virkja. Ólafur og Skúli ósammála Hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Skúli Magnússon skiluðu sameiginlegu sératkvæði í málinu. Í því segir að leggja þyrfti til grundvallar að jaðar Drangajökuls hafi verið talinn fela í sér svo augljóst náttúrulegt merki inn til landsins að ekki þarfnaðist sérstakrar umfjöllunar í landamerkjabréfi Drangavíkur. Einnig yrði að telja rökrétt við túlkun bréfsins að miðað sé við að norðanverð merki jarðarinnar til fjalla fylgi suðurmörkum Dranga allt að jökulbrún. Styðji það þessa niðurstöðu að landamerkjabréf Drangavíkur sé áritað af eiganda Dranga andstætt bréfi Engjaness. Með vísan til þess bæri að fallast á málatilbúnað eigenda Drangavíkur í öllu verulegu.
Deilur um Hvalárvirkjun Árneshreppur Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Fleiri fréttir Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Tröppurnar við Grafarvogskirkju hreinsaðar Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Sjá meira