Sjáðu stórkostlega hjólhestaspyrnu Ronaldos Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. nóvember 2025 08:32 Cristiano Ronaldo skorar draumamark sitt fyrir Al-Nassr gegn Al-Khaleej. getty/Abdullah Ahmed Cristiano Ronaldo skoraði frábært mark með hjólhestaspyrnu fyrir Al-Nassr í 4-1 sigri á Al-Khaleej í sádi-arabísku úrvalsdeildinni í gær.
Ronaldo var rekinn út af í leik Írlands og Portúgals í undankeppni HM um þarsíðustu helgi og skammaðist í Heimi Hallgrímssyni, þjálfara írska liðsins, er hann gekk af velli. Ronaldo virtist þó vera búinn að hrista þetta af sér þegar Al-Nassr tók á móti Al-Khaleej í gær. Á sjöttu mínútu í uppbótartíma sendi Nawaf Boushal fyrir frá hægri á Ronaldo sem gerði sér lítið fyrir og skoraði með hjólhestaspyrnu. Best caption wins! 🤔 pic.twitter.com/EodMPG9Mt0— Cristiano Ronaldo (@Cristiano) November 23, 2025 Markið minnti um margt á frægt mark sem hann skoraði með hjólhestaspyrnu í leik Juventus og Real Madrid í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu 2018. Joao Félix, Wesley og Sadio Mané voru einnig á skotskónum fyrir Al-Nassr sem hefur unnið alla níu deildarleiki sína á tímabilinu og er með fjögurra stiga forskot á toppnum. Ronaldo er næstmarkahæstur í deildinni með tíu mörk. Félix, sem er einnig samherji hans í portúgalska landsliðinu, er markahæstur með ellefu mörk. Hinn fertugi Ronaldo hefur skorað 110 mörk fyrir Al-Nassr síðan hann gekk í raðir liðsins frá Manchester United í ársbyrjun 2023.
Sádiarabíski boltinn Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport Fleiri fréttir FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Sjá meira