Hulunni svipt af nýjum Íþróttaálfi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 23. nóvember 2025 13:38 Frá vinstri eru Glanni Glæpur, Solla stirða og Íþróttaálfur. Aðsent Latibær fagnar þrjátíu ára afmæli sínu í Háskólabíói í janúar og býður börnum og fjölskyldum þeirra að fagna með sér. Nú hefur hulunni verið svipt af því hverjir það eru sem fara með hlutverk persónanna sígildu.
Samkvæmt tilkynningu frá aðstandendum Afmælishátíðar Latabæjar sem haldin verður með pompi og prakt 17. og 18. janúar á næsta ári var einvala lið leikara valið í verkefnið. Þau geri litríkar persónur Latabæjar að sínum á ferskan og spennandi hátt. Ný kynslóð íbúa Latabæjar Með hlutverk Íþróttaálfsins fer hinn fjölhæfi leikari Mikael Kaaber. Hann fer um þessar mundir með eitt aðalhlutverka í söngleiknum Moulin Rouge á fjölum Borgarleikhússins og hefur einnig leikið í sjónvarpi og kvikmyndum. Mikael Kaaber er Íþróttaálfurinn.Aðsend „Hann er þekktur fyrir sjarma sinn og einlægni auk þess að vera mjög góða hreyfigetu svo hann smellpassar í hlutverk Íþróttaálfsins. Hann mun halda upp í orkunni og gleðinni í botni allan tímann í Háskólabíó,“ segir í tilkynningunni um Mikael. Hildur Vala er Solla stirða.Aðsend Mótleikkona Mikaels í Moulin Rouge, hún Hildur Vala Baldursdóttir, er svo hin nýja Solla stirða. Í tilkynningu segir að hún komi með hlýju og kraft inn í verkefnið og að hún muni gefa Sollu stirðu nýja dýpt og lifandi nærveru í túlkun sinni. Ný Glanni Glæpur er Almar Blær Sigurjónsson. Fram kemur að hann túlki hinn sívinsæla vonda karl sem er ekkert svo vondur snilldarlega. „Latibær í allri sinni dýrð“ „Við viljum skapa lifandi upplifun þar sem börnin eru ekki bara áhorfendur heldur eru hluti af henni og taka virkan þátt allan tímann. Þau munu dansa, hoppa og taka þátt í gegnum leik- og hreyfingu í sýningunni,“ segir Stella Rósenkranz, framleiðandi og listrænn stjórnandi afmælishátíðar Latabæjar. Aðstandendur lofa glæsilegri afmælisveislu.Aðsend „Þetta er Latibær í allri sinni dýrð. Uppfærð útgáfa fyrir nýja kynslóð. Við viljum setja börnin í aðalhlutverkið og færa Latabæ á svið með þeim tilgang að hreyfing og hvatning sé í fyrirrúmi. Þetta verður stórkostleg stund sem verður uppbyggjandi og jákvæð upplifun fyrir börnin. Við erum ótrúlega stolt af því að kynna nýju leikarana til leiks, sem allir bera Latabæjar andann með sér - gleði, skapandi leik og jákvæða ímynd. Öll frábærar fyrirmyndir og smellpassa inn í Latabæ - þetta verður æðislegt,“ segir Stella.
Börn og uppeldi Bíó og sjónvarp Mest lesið Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Lífið Minnist sonar síns og styður við börn í sorg Lífið Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Lífið Kinký bangsar og leðurklæddir kroppar Menning Fréttatía vikunnar: Lilja, eitur og krulla Lífið Hlægileg sjálfsfróun og hryðjuverk á Wuthering Heights Gagnrýni Á leið á flugvöllinn þegar fluginu var flýtt Lífið Vinkonuferð til Íslands tók óvænta stefnu Lífið Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Lífið Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn Lífið Fleiri fréttir Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Minnist sonar síns og styður við börn í sorg Fréttatía vikunnar: Lilja, eitur og krulla Bleikar kollur, gellur og gaurar Einn sá efnilegasti ætlar að verða sá fyrsti inn á Ólympíuleika Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn Á leið á flugvöllinn þegar fluginu var flýtt Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Frá einni ofurbombu til annarrar Eric Dane er látinn Þeim fjölgar sem skilja Íslensk Barbí og Ken: „Litaði bara hárið og fór í sprey-tan“ Vigdís og Gerald Häsler selja húsið Nýtt verk frá Martin en samt kvarta aðdáendur Falsmyndir af sólmyrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“ Ekkja Hefners varar við birtingu nektarmynda úr dagbókum hans Verður alltaf meyr þegar hann hugsar um lífsbjörgina „Við löbbum ekki bara og hrösum um Esjuna“ Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sungið, saumað og sprellað á öskudaginn Sagði já og baðst í leiðinni afsökunar „Ég skal rétta þjófinum 60.000 kall og óska honum góðs dags“ Tannlæknir sem tannkrem á öskudaginn Keyptu 250 fermetra hús í Andalúsíu á fjörutíu milljónir Handtekinn fyrir að sýna typpið LaBeouf buffaði tvo og sambandið búið spil Pedro Pascal og Rafa saman á Valentínusardag „Ég er alltaf þreyttur á sjálfum mér“ Hætti að drekka og flutti til Balí Sjá meira