Haaland verður á HM og langri bið Noregs lýkur Sindri Sverrisson skrifar 13. nóvember 2025 18:56 Erling Haaland og félagar fagna marki gegn Eistlandi í kvöld. Getty/Joem Pollex Noregur verður með á HM í fótbolta næsta sumar, í fyrsta sinn frá því á síðustu öld, nema að Ítalir nái að kalla fram mesta kraftaverk fótboltasögunnar.
Erling Haaland og Alexander Sörloth skoruðu tvö mörk hvor í kvöld, þegar Noregur vann 4-1 sigur gegn Eistlandi og tók þannig lokaskrefið inn á HM, ef svo má segja. Klippa: Noregur - Eistland 4-1 Ítalía getur enn fræðilega náð efsta sæti I-riðils af Noregi, með sigri gegn Moldóvu í kvöld og gegn Noregi á sunnudaginn, en þá þurfa Ítalir að vinna upp hvorki meira né minna en 19 marka forskot Noregs í markatölu. Það má því slá því föstu að Ítalía neyðist til að fara í umspilið um sæti á HM en að Noregur komist beint á mótið. Noregur hefur ekki spilað á HM síðan á mótinu eftirminnilega árið 1998, þegar liðið vann frækinn sigur gegn Brasilíu, og síðasta stórmót norska liðsins var fyrir aldarfjórðungi, á EM 2000. HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó næsta sumar verður því fyrsta stórmót stórstjarna á borð við Erling Haaland og Martin Ödegaard. 🤖🇳🇴 Erling Haaland reaches 30 goals this season in all competitions with club and country!53 goals in 47 games with Norway. pic.twitter.com/bMulbFtsDV— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) November 13, 2025 Aðdáendur norska liðsins þurftu að bíða allan fyrri hálfleikinn eftir fyrsta markinu í kvöld en það kom loks þegar Sörloth skoraði á 50. mínútu, og hann bætti við öðru aðeins tveimur mínútum síðar. Haaland skoraði svo tvö mörk skömmu síðar.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Fleiri fréttir Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Sjá meira