Öll gögn á ensku annars ógildist krafan Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 9. nóvember 2025 22:53 Garðar Stefánsson er forstjóri Rapyd á Íslandi. Rapyd Greiðslumiðlunarfyrirtækið Rapyd hyggst innleiða nýtt endurkröfuferli sem felur meðal annars í sér að gögn sem send eru fyrirtæknu vegna endurkrafna verði að vera á ensku eða með enskri þýðingu.
Eiríki Rögnvaldssyni, prófessor emerítus í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, barst afrit af tölvupósti sem Rapyd mun hafa sent til söluaðila sem eru í viðskiptum við fyrirtækið. Þar kemur fram að hingað til hafi starfsmenn í svokölluðu endurkröfuteymi aðstoðað við að þýða gögn og bætt við útskýringum á ensku og svo komið þeim áleiðis til kortasamtaka á borð við Visa, Mastercard og Amex. Sú breyting verði þar á eftir 1. desember næstkomandi að gögnin verði send beint til kortasamtakanna án skoðunar starfsmanns. Því þurfi öll gögn sem varða endurkröfu að berast á ensku. „Til að tryggja að mótmæli við endurkröfu séu tekin gild þurfa öll gögn að vera á ensku eða fylgja ensk þýðing á upprunalegum gögnum. Kortasamtökin telja annars mótmælin ógild og endurkrafan tapast,“ segir í tölvupóstinum. Eiríki Rögnvaldsson vakti athygli á þessu nýja kerfi Rapyd á Facebook-hópnum Málspjalli og var afdráttarlaus í máli. „Það er auðvitað sérkennilegt og ótækt að fyrirtæki sem starfar á Íslandi skuli krefjast þess að fá gögn á ensku. Þetta er þeim mun neyðarlegra sem Rapyd hefur lagt mikla áherslu á að það sé íslenskt fyrirtæki sem eigi „djúpar rætur í íslensku samfélagi“. Það verður ekki betur séð en þessar rætur séu allmjög farnar að trosna og jarðvegurinn kringum þær að blása upp,“ skrifaði hann.
Greiðslumiðlun Fjármálafyrirtæki Íslensk tunga Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira