Ríkisstjórnin ræðst gegn launafólki og atvinnulausum Finnbjörn A. Hermannson skrifar 29. október 2025 11:15 Hver er sýn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur til þess velferðarsamfélags sem tekist hefur að byggja upp á Íslandi? Ég minnist þess ekki að slíkri grundvallarspurningu hafi nokkru sinni verið beint til okkar ágæta forsætisráðherra og framganga ríkisstjórnar hennar gefur ekki til kynna að fólkið sem þar hefur komið sér fyrir í valdastólum hafi hugleitt það gífurlega starf sem fyrri kynslóðir lögðu á sig í því skyni að leiða samfélag okkar úr sárri fátækt á velferðarbraut. Jafnframt hafa, því miður, vaknað efasemdir um að ráðherrar núverandi ríkisstjórnar hafi til að bera nægilega sögulega yfirsýn að ekki sé talað um virðingu fyrir eðlilegum samskiptum og samráði er þeir véla um hagsmuni fólksins í landinu. Í niðurskurðarfjárlögum núverandi ríkisstjórnar er svonefndum „aðhaldsaðgerðum“ beint að íslensku launafólki og sérstaklega þeim hópum sem neðst standa í tekjustiganum. Hér eru dæmi um áherslur niðurskurðarstefnunnar sem snerta beint kjör og réttindi launafólks: Bótatímabil atvinnuleysistrygginga verður stytt um 12 mánuði og reglur um ávinnslu þrengdar. Fjárhæðir í barnabótakerfinu haldast óbreyttar og stuðningur við barnafjölskyldur rýrnar að raungildi. Fjárhæðir í húsnæðis- og vaxtabótakerfinu haldast óbreyttar og stuðningur vegna húsaleigu og vaxtakostnaðar rýrnar að raungildi. Sérstökum aðhaldsráðstöfunum upp á 3,8 milljarða króna verður hrundið í framkvæmd í heilbrigðiskerfinu og kostnaðarþáttaka sjúklinga verður aukin. Framlög til framhaldsfræðslu og íslenskukennslu verða lækkuð. Þarna opinberast forgangsröðun ríkisstjórnarinnar því allt eru þetta pólitískar ákvarðanir. Ekki þarf mikla þekkingu á samfélagi okkar til að greina að niðurskurðinum er fyrst og fremst ætlað að koma af mestum þunga niður á lágtekjufólki, leigjendum og innflytjendum. Svona gerir maður ekki Atvinnuleysistryggingar eru hluti af réttindum sem launafólk ávinnur sér með þátttöku á vinnumarkaði og eru einn af hornsteinum afkomuverndar almennings. Að baki atvinnuleysistryggingum býr merkileg saga átaka og verkfalla sem verkalýðshreyfingin þurfti að efna til í því skyni að knýja fram þessar samfélagslegu umbætur sem fela í sér aðstoð við fólk í sérlega erfiðum og krefjandi aðstæðum. Nú hefur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur einhliða ákveðið að stytta rétt til atvinnuleysisbóta um heilt ár og þrengja ávinnslurétt tryggingarinnar. Þetta er ákveðið þrátt fyrir að allt frá miðri síðustu öld hafi legið fyrir að ekki yrðu gerðar breytingar á þessum grunnréttindum launafólks án samráðs við verkalýðshreyfinguna. Jafnframt hefur öllum viðkomandi verið ljóst að atvinnuleysistryggingakerfið verður ekki aðskilið frá þeim sveigjanlega vinnumarkaði sem mótast hefur hér á landi. Ráðmenn segja að niðurskurðurinn eigi að skila sex milljarða króna „hagræðingu“ hjá ríkissjóði á ári þegar þessi skerðing á réttindum launafólks hefur verið að fullu innleidd. Forsendur þess útreiknings sýnast hæpnar, að minnsta kosti afar óljósar. „Svona gerir maður ekki“ var eitt sinn sagt við íslenskan ráðherra sem misst hafði allt jarðsamband í gleði yfir eigin mikilfengleika og kunngjört vanhugsaða og gerræðislega ákvörðun. Einhver pólitískur þungavigtarmaður þyrfti nú að eiga orðastað við hæstvirtan félagsmálaráðherra. Viljinn til valda Ég bið lesendur að taka eftir því að Alþýðusamband Íslands er og hefur lengi verið tilbúið eiga viðræður um umbætur á atvinnuleysistryggingakerfinu. Ég minni á að 2021 skipaði þáverandi félagsmálaráðherra starfshóp sem fékk það hlutverk að endurskoða lög um atvinnuleysisbætur. Fulltrúar launafólks, atvinnurekenda og stjórnvalda tóku þátt í þeirri vinnu. Lengd bótatímabilsins var m.a. til umræðu þar. Núverandi félagsmálaráðherra gefur ekki kost á frekara starfi á þeim vettvangi. Þess í stað kýs ráðherrann að splundra þríhliða samstafi aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda með einhliða ákvörðun um réttindaskerðingu atvinnuleitenda. Reynslan hræðir Nú má spyrja: hvers vegna telur verkalýðshreyfingin á Íslandi ótækt að stytta rétt til atvinnuleysisbóta úr 30 mánuðum í 18? Fyrsti liður svarsins felst einmitt í vinnubrögðum félagsmálaráðherra. Þótt þau séu að sönnu fordæmalaus í vanstillingu sinni hafa fyrri ríkisstjórnir löngum horft til niðurskurðar á þessum vettvangi. Almenningur í landinu getur ekki átt allt sitt undir velvilja stjórnvalda hverju sinni – um slík réttindi hefur verið samið og samningar skulu standa. Íslenskt efnahags- og atvinnulíf er óstöðugt og sveiflukennt langt umfram það sem þekkist í „löndunum sem við viljum bera okkur saman við“ eins og stjórnmálamennirnir segja þegar þeim svo hentar. Af þeim sökum er þörf á svo löngu bótatímabili. Þá er sá sveigjanlegi vinnumarkaður sem hér á landi tíðkast felur í sér að girðingar vegna uppsagna eru lágar og lægri en almennt tíðkast í fyrrnefndum nágrannaríkjum. Þetta er aðlögun að aðstæðum og hefur um margt þótt gagnast vel. Við þetta er svo því að bæta að stjórnvöld hafa árum saman sýnt atvinnulausum lítinn áhuga og birtist það m.a. í að hér er mun minni fjármunum veitt í vinnumarkaðsaðgerðir í þágu þeirra en í áðurnefndum fyrirmyndarríkjum. Þetta áhersluatriði annarra Norðurlanda skapar forsendur fyrir styttri bótatímabilum þar á bæjum. Það á ekki við hér á landi og ekki að sjá áform um breytingu þar á. Einhliða ákvörðun ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um skerðingu atvinnuleysistrygginga er aðför að launafólki á Íslandi, réttindum þess og kjörum. Verkalýðshreyfingin getur hvorki sætt sig við form né inntak þeirrar ákvörðunar. Höfundur er forseti Alþýðusambands Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Finnbjörn A. Hermannsson ASÍ Vinnumarkaður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál Mest lesið Halldór 12.09.2026 Halldór Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokk Rósa Líf Darradóttir Skoðun Skoðun Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokk Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar