Arsenal með langbestu vörn Evrópu Valur Páll Eiríksson skrifar 22. október 2025 16:16 William Saliba og félagar í vörn Arsenal hafa staðið vaktina vel. AP Photo/Kirsty Wigglesworth Vörn Arsenal er sú besta í Evrópu sé litið til meðaltals marka sem lið í stærstu deildum álfunnar hafa fengið á sig á leiktíðinni. Arsenal hefur fengið á sig mark í fjórða hverjum leik.
Arsenal vann afgerandi 4-0 sigur á spænska stórliðinu Atlético Madrid í Meistaradeild Evrópu í gær og fylgir þar með eftir sitthvorum 2-0 sigrinum á Athletic Bilbao annars vegar og Olympiakos hins vegar í keppninni fram að því. Arsenal er því með markatöluna 8-0 eftir þrjá leiki í keppninni. Alls hefur Arsenal spilað tólf leiki í öllum keppnum og aðeins fengið á sig þrjú mörk, öll í ensku úrvalsdeildinni, en liðið vann 2-0 sigur á Port Vale í enska deildabikarnum. Manchester City, Liverpool og Newcastle United eru einu þrjú liðin sem hafa fundið leið í netmöskvana gegn Skyttunum það sem af er vetri. Liverpool vann 1-0 sigur þökk sé aukaspyrnumarki Dominik Szoboszlai á Anfield í lok ágúst, Arsenal og City gerðu 1-1 jafntefli um miðjan september og Arsenal vann Newcastle 2-1 viku síðar. Arsenal hefur því fengið á sig 0,25 mörk að meðaltali í leik í vetur, töluvert minna að meðaltali en AC Milan sem hefur aðeins fengið á sig fjögur mörk í öllum keppnum, en í níu leikjum, 0,44 að meðaltali. Næst koma Roma og Como frá Ítalíu, það síðarnefnda er jafnt Manchester City og Sunderland er í sjötta til sjöunda sæti ásamt Bologna. Ensk og ítölsk lið einoka nánast lista þeirra tíu liða sem hafa fæst mörk fengið á sig, en þar eru að auki Inter Milan, Lyon frá Frakklandi og Bayern Munchen frá Þýskalandi. Listann má sjá á myndinni að neðan. Arsenal er efst í ensku úrvalsdeildinni með 19 stig eftir átta leiki, þremur stigum á undan Manchester City en þar á eftir koma Bournemouth og Liverpool. Transfermarkt tók saman lista yfir bestu varnir í fimm stærstu deildum Evrópu það sem af er leiktíð.Mynd/Transfermarkt
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira