Þegar allt er að fara fjandans til… Rakel Sveinsdóttir skrifar 11. september 2026 07:02 Sumir eru í essinu sínu þegar það er mikill hamagangur í fréttum og á samfélagsmiðlum. Á meðan aðrir upplifa sig andlega þreytta, finnst neikvæðnin ríkjandi og draga úr einbeitingarmætti og orku. Vísir Fólk var orðið langþreytt á stöðugu gargi um viðræður af eða á við ESB: Já eða Nei. Þegar gengið var að kjörborðinu 29. ágúst önduðu margir léttar, einfaldlega dauðfegnir að þeirri hringiðu væri lokið. En tók eitthvað betra við? Varla. Kjarasamningar í uppnámi, þingið að setja sig í stellingar (hávaðinn er hafinn!) og almennt er umræðan á frekar neikvæðum nótum. Svo ekki sé talað um Pisa... Stjörnurnar á sviðinu eru helst stjórnarliðar, stjórnarandstaða, forkólfar verkalýðsfélaga og forystufólk atvinnulífs en við þessa hópa bætast síðan allir hinir við sem eru aldeilis ósammála og vilja láta í sér heyra. Meira að segja Trump er nú búinn að eigna sér Ísland. Er kannski allt að fara fjandans til? Hér skal reyndar á það bent að sumir einfaldlega elska svona tíma! Eru nánast á refresh-takkanum stöðugt til að fylgjast með fréttum, sækja sér extra marga kaffibolla til að taka samtalið þar og eru þá ótaldir samfélagsmiðlarnir og ummælaskrifin. Í þessum vikulokum beinast góðu ráðin að þeim hópi fólks sem upplifir sig svolítið andlega búið á þessu öllu saman. Allt svo neikvætt eitthvað að það er ekki hægt annað en að hafa áhyggjur af því að rétt sé að hafa áhyggjur af öllu. Allt hefur þetta áhrif á það hvernig okkur líður og hvernig okkur gengur. Meðal annars í vinnu og námi. Hér eru fern hagnýt ráð til að verja geðheilsuna: 1. Tímastjórnun á fréttir og samfélagsmiðlum Rannsóknir sýna að stöðug neysla á neikvæðum fréttum getur valdið langvinnum streitueinkennum og dregið úr andlegri seiglu. Í umfjöllun The Guardian um skaðsemi „dómsdagsskruns“ (e. doomscrolling) benda sérfræðingar á mikilvægi þess að setja skýr tímamörk, slökkva á tilkynningum og forðast fréttalestur í rúminu til að hlífa taugakerfinu. 2. Settu orkuna í þitt eigið áhrifasvæði Ásgeir sér um stýrivextina og þú ert ekki beintengdur samningum um kjarasamninga né hefur þú nokkuð um fjárlögin að segja. Að minnsta kosti ekki fyrr en í næstu kosningum. Í augnablikinu er því skynsamlegast að setja orkuna í þau mál sem þú getur haft áhrif á. Að hafa stöðugar áhyggjur af hlutum sem eru algjörlega utan okkar stjórnar tæmir orkubirgðirnar hratt. 3. Birta og hreyfing fyrir veturinn Haustþreyta og skammdegisdrungi byrja gjarnan að gera vart við sig einmitt á þessum árstíma. Líkamsrækt og dagsbirta eru ekki bara góð fyrir líkamann, heldur beinlínis nauðsynleg fyrir efnabúskap heilans. Sérfræðingar Mayo Clinic um árstíðabundið þunglyndi og forvarnir benda á að stuttur göngutúr utandyra snemma dags, dagsbirtulampar og regluleg hreyfing geti skipt sköpum við að koma í veg fyrir að við verðum orkulaus og niðurdregin þegar haustar. 4. Skjólið er heima Ef andrúmsloftið í samfélaginu er eitrað og kalt þarftu að eiga öruggan griðastað heima. Prófaðu að setja tímabundið samræðubann á stjórnmál og kjaramál yfir kvöldmatarborðinu. Kveiktu á kertum, taktu upp bók í stað þess að horfa á umræðuþætti og hlúðu að nærumhverfinu. Við fáum engu breytt um það að veturinn nálgast og pólitíkin mun áfram vera hávaðasöm. En við ráðum því hvort við mætum þeim veruleika með tættar taugar eða meðvituð um að vernda okkar eigið andlega rými. Góðu ráðin Tengdar fréttir Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Þegar tíðar fréttir eru um uppsagnir er auðvelt að finna til. Því hver uppsagnarfrétt er meira en okkur aðeins til upplýsinga. Þetta eru líka fréttir um vinnustaði sem við vitum þá um leið að eru að upplifa sorg, sjokk og allt þar á milli. 3. september 2026 07:04 Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Í kjölfar Covid erum við orðin vanari því að heyra um fólk sem starfar í fjarvinnu; velur sér búsetu einhvers staðar í heiminum óháð staðsetningu vinnuveitanda. 17. ágúst 2026 07:03 Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Geðlæknir í San Francisco segir frá því í viðtali á dögunum að á einu ári hafi hann lagt inn tólf einstaklinga sem höfðu misst tengsl við raunveruleikann eftir mjög mikla notkun á gervigreind. 5. ágúst 2026 07:03 Uppsagnir fram undan og óttinn vex Það eru engin ný tíðindi að það er kólnun í hagkerfinu. Fréttir hafa verið um uppsagnir og margir vinnustaðir búa sig undir uppsagnir. 22. júní 2026 07:01 Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Það er ekkert sem kennir okkur jafn góðar lexíur eða styrkir og mistök sem við náum að draga lærdóm af. Því ekkert okkar getur litið í baksýnisspegilinn og ekki séð hvar eða hvernig við hefðum mátt gera betur. 20. maí 2026 07:04 Mest lesið Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Fleiri fréttir Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Sjá meira
En tók eitthvað betra við? Varla. Kjarasamningar í uppnámi, þingið að setja sig í stellingar (hávaðinn er hafinn!) og almennt er umræðan á frekar neikvæðum nótum. Svo ekki sé talað um Pisa... Stjörnurnar á sviðinu eru helst stjórnarliðar, stjórnarandstaða, forkólfar verkalýðsfélaga og forystufólk atvinnulífs en við þessa hópa bætast síðan allir hinir við sem eru aldeilis ósammála og vilja láta í sér heyra. Meira að segja Trump er nú búinn að eigna sér Ísland. Er kannski allt að fara fjandans til? Hér skal reyndar á það bent að sumir einfaldlega elska svona tíma! Eru nánast á refresh-takkanum stöðugt til að fylgjast með fréttum, sækja sér extra marga kaffibolla til að taka samtalið þar og eru þá ótaldir samfélagsmiðlarnir og ummælaskrifin. Í þessum vikulokum beinast góðu ráðin að þeim hópi fólks sem upplifir sig svolítið andlega búið á þessu öllu saman. Allt svo neikvætt eitthvað að það er ekki hægt annað en að hafa áhyggjur af því að rétt sé að hafa áhyggjur af öllu. Allt hefur þetta áhrif á það hvernig okkur líður og hvernig okkur gengur. Meðal annars í vinnu og námi. Hér eru fern hagnýt ráð til að verja geðheilsuna: 1. Tímastjórnun á fréttir og samfélagsmiðlum Rannsóknir sýna að stöðug neysla á neikvæðum fréttum getur valdið langvinnum streitueinkennum og dregið úr andlegri seiglu. Í umfjöllun The Guardian um skaðsemi „dómsdagsskruns“ (e. doomscrolling) benda sérfræðingar á mikilvægi þess að setja skýr tímamörk, slökkva á tilkynningum og forðast fréttalestur í rúminu til að hlífa taugakerfinu. 2. Settu orkuna í þitt eigið áhrifasvæði Ásgeir sér um stýrivextina og þú ert ekki beintengdur samningum um kjarasamninga né hefur þú nokkuð um fjárlögin að segja. Að minnsta kosti ekki fyrr en í næstu kosningum. Í augnablikinu er því skynsamlegast að setja orkuna í þau mál sem þú getur haft áhrif á. Að hafa stöðugar áhyggjur af hlutum sem eru algjörlega utan okkar stjórnar tæmir orkubirgðirnar hratt. 3. Birta og hreyfing fyrir veturinn Haustþreyta og skammdegisdrungi byrja gjarnan að gera vart við sig einmitt á þessum árstíma. Líkamsrækt og dagsbirta eru ekki bara góð fyrir líkamann, heldur beinlínis nauðsynleg fyrir efnabúskap heilans. Sérfræðingar Mayo Clinic um árstíðabundið þunglyndi og forvarnir benda á að stuttur göngutúr utandyra snemma dags, dagsbirtulampar og regluleg hreyfing geti skipt sköpum við að koma í veg fyrir að við verðum orkulaus og niðurdregin þegar haustar. 4. Skjólið er heima Ef andrúmsloftið í samfélaginu er eitrað og kalt þarftu að eiga öruggan griðastað heima. Prófaðu að setja tímabundið samræðubann á stjórnmál og kjaramál yfir kvöldmatarborðinu. Kveiktu á kertum, taktu upp bók í stað þess að horfa á umræðuþætti og hlúðu að nærumhverfinu. Við fáum engu breytt um það að veturinn nálgast og pólitíkin mun áfram vera hávaðasöm. En við ráðum því hvort við mætum þeim veruleika með tættar taugar eða meðvituð um að vernda okkar eigið andlega rými.
Hér skal reyndar á það bent að sumir einfaldlega elska svona tíma! Eru nánast á refresh-takkanum stöðugt til að fylgjast með fréttum, sækja sér extra marga kaffibolla til að taka samtalið þar og eru þá ótaldir samfélagsmiðlarnir og ummælaskrifin.
Góðu ráðin Tengdar fréttir Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Þegar tíðar fréttir eru um uppsagnir er auðvelt að finna til. Því hver uppsagnarfrétt er meira en okkur aðeins til upplýsinga. Þetta eru líka fréttir um vinnustaði sem við vitum þá um leið að eru að upplifa sorg, sjokk og allt þar á milli. 3. september 2026 07:04 Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Í kjölfar Covid erum við orðin vanari því að heyra um fólk sem starfar í fjarvinnu; velur sér búsetu einhvers staðar í heiminum óháð staðsetningu vinnuveitanda. 17. ágúst 2026 07:03 Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Geðlæknir í San Francisco segir frá því í viðtali á dögunum að á einu ári hafi hann lagt inn tólf einstaklinga sem höfðu misst tengsl við raunveruleikann eftir mjög mikla notkun á gervigreind. 5. ágúst 2026 07:03 Uppsagnir fram undan og óttinn vex Það eru engin ný tíðindi að það er kólnun í hagkerfinu. Fréttir hafa verið um uppsagnir og margir vinnustaðir búa sig undir uppsagnir. 22. júní 2026 07:01 Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Það er ekkert sem kennir okkur jafn góðar lexíur eða styrkir og mistök sem við náum að draga lærdóm af. Því ekkert okkar getur litið í baksýnisspegilinn og ekki séð hvar eða hvernig við hefðum mátt gera betur. 20. maí 2026 07:04 Mest lesið Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Fleiri fréttir Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Sjá meira
Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Þegar tíðar fréttir eru um uppsagnir er auðvelt að finna til. Því hver uppsagnarfrétt er meira en okkur aðeins til upplýsinga. Þetta eru líka fréttir um vinnustaði sem við vitum þá um leið að eru að upplifa sorg, sjokk og allt þar á milli. 3. september 2026 07:04
Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Í kjölfar Covid erum við orðin vanari því að heyra um fólk sem starfar í fjarvinnu; velur sér búsetu einhvers staðar í heiminum óháð staðsetningu vinnuveitanda. 17. ágúst 2026 07:03
Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Geðlæknir í San Francisco segir frá því í viðtali á dögunum að á einu ári hafi hann lagt inn tólf einstaklinga sem höfðu misst tengsl við raunveruleikann eftir mjög mikla notkun á gervigreind. 5. ágúst 2026 07:03
Uppsagnir fram undan og óttinn vex Það eru engin ný tíðindi að það er kólnun í hagkerfinu. Fréttir hafa verið um uppsagnir og margir vinnustaðir búa sig undir uppsagnir. 22. júní 2026 07:01
Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Það er ekkert sem kennir okkur jafn góðar lexíur eða styrkir og mistök sem við náum að draga lærdóm af. Því ekkert okkar getur litið í baksýnisspegilinn og ekki séð hvar eða hvernig við hefðum mátt gera betur. 20. maí 2026 07:04