Snýr aftur eftir 30 mánaða bann Valur Páll Eiríksson skrifar 15. október 2025 11:32 Þrjátíu mánaða bannið sem Fabio Paratici var úrskurðaður í gildir núna um allan heim. Getty/Simon Stacpoole Fabio Paratici er snúinn aftur til starfa sem íþróttastjóri hjá Tottenham Hotspur eftir tvö og hálft ár í banni frá afskiptum af fótbolta vegna brota í starfi hjá Juventus.
Paratici var dæmdur í bann af Alþjóðaknattspyrnusambandinu FIFA í apríl 2023. Hann sagði þá starfi sínu lausu hjá Tottenham, eftir að áfrýjun hans við banninu var hafnað af íþróttadómstóli á Ítalíu. Ítalinn var dæmdur í bannið fyrir brot í starfi hjá Juventus. Hann sinnti þar starfi framkvæmdastjóra sem og íþróttastjóra er félagið lagði fram falska ársreikninga. Tíu stig voru tekin af félaginu í A-deildinni á Ítalíu vegna brotanna á þeim tíma. Í síðasta mánuði komst Paratici, ásamt öðrum stjórnendum Juventus á þeim tíma, að samkomulagi við dómsyfirvöld á Ítalíu sem koma í veg fyrir að hann þurfi að sitja inni fyrir brot sín. Hann átti yfir höfði sér allt að 18 mánaða fangelsisdóm vegna brotanna. Paratici snýr nú aftur til starfa hjá Lundúnafélaginu og mun deila stöðu íþróttastjóra ásamt Johan Lange, sem hefur sinnt því frá því að sá ítalski sagði upp fyrir tveimur og hálfu ári síðan. Tottenham hefur farið vel af stað í ensku úrvalsdeildinni undir stjórn Danans Thomas Frank, sem tók við sem þjálfari liðsins í sumar af Ange Postecoglou. Liðið er með 14 stig eftir sjö leiki og situr í þriðja sæti deildarinnar, tveimur frá toppliði Arsenal. Tottenham er þá með fjögur stig í Meistaradeild Evrópu eftir sigur á Villarreal og jafntefli við Bodö/Glimt í Noregi.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira