„Mjög ljót meiðsli eftir slæma og óþarfa tæklingu“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 25. september 2025 20:35 Nik Chamberlain segir skiljanlegt að lið Breiðabliks hafi verið í vægu áfalli eftir að hafa séð liðsfélaga sárkvalinn. Breiðablik var yfir í hálfleik en tapaði 2-1 fyrir Stjörnunni eftir að hafa misst miðvörðinn Elínu Helenu Karlsdóttur út af vegna meiðsla.
Breiðablik var með yfirhöndina í fyrri hálfleik og leiddi með einu marki. Stjarnan hafði þá skapað sér fá færi og Elín Helena spilaði stóran þátt í því með sínum varnarleik. Þegar hún vann boltann af gestunum úr Garðabæ í enn eitt skipti tók Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir til sinna ráða og tæklaði hana algjörlega að óþörfu. Ingibjörg var ekki nálægt því að vinna boltann og Elín var alls ekki að búast við tæklingu á þessum tímapunkti. Elín féll því mjög harkalega til jarðar og handleggsbrotnaði. Stjarnan sneri leiknum svo í seinni hálfleik og vann 2-1 sigur. „Stelpurnar voru ólíkar sjálfum sér í kvöld, gerðu mörg mistök og vönduðu sig ekki þegar þær voru með boltann. Líklega voru þær í svolitlu áfalli eftir að hafa misst Elínu út af, þetta voru mjög ljót meiðsli eftir slæma og óþarfa tæklingu. Því miður fór þetta þannig“ sagði Nik Chamberlain, þjálfari Breiðabliks, eftir leik. Sjúkrabíll sótti Elínu og fór með hana á spítala.vísir / pawel Höfðu meiðsli Elínar mikil áhrif á liðið í seinni hálfleik? „Ég held það. Stelpurnar voru skelkaðar og maður sá að hugurinn var annars staðar en á vellinum, þó þær hafi reynt að einbeita sér að leiknum. Skiljanlega. Vonandi jafnar hún sig fljótt, þó hún verði frá það sem eftir er af þessu tímabili. Við munum hrista hópinn saman og sjá til þess að við klárum þetta tímabil almennilega fyrir hana.“
Besta deild kvenna Breiðablik Stjarnan Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjá meira