Lækkar vexti og boðar frekari innreið á lánamarkað Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. september 2025 11:13 Tryggvi Björn Davíðsson, framkvæmdastjóri Indó. Vísir/Vilhelm Sparisjóðurinn indó hefur lækkað vexti og býður nú útlánsvexti sem eru með því allra lægsta sem í boði er og án bullgjalda, eins og segir í tilkynningu. Samhliða lækka vextir á veltureikningum og sparibaukum. Með lækkuninni boðar indó enn frekari innreið á lánamarkað sem fylgt verður eftir á næstunni með nýjum lánavörum.
Vextir á öllum útlánum lækka um 0,25%, á veltureikningum um 0,50% og sparibaukum um 0,25%. „Hátt vaxtastig bitnar á lántökum og með þessu getum við boðið betri kjör á útlánum, án þess að bíða eftir stýrivaxtalækkun. Kannanir okkar sýna að um helmingur indóa vilja taka fjölbreyttari lán hjá okkur og við ætlum að svara því kalli með því að bjóða einföld, gagnsæ og sanngjörn lán. Með þessu tökum við fast skref inn á lánamarkað og við stefnum í nánustu framtíð á að bjóða enn fjölbreyttari lánakosti,“ segir Tryggvi Björn Davíðsson, framkvæmdastjóri indó. Í dag býður indó upp á þrenns konar lán: fyrirframgreidd laun, færslusplitt og yfirdrátt. Að sögn Tryggva styttist í að skuldabréfalán verði í boði fyrir viðskiptavini indó og búast megi við enn frekara lánaframboði hjá indó á næstu misserum. Vextir á veltureikningum verða því 1,25%, vextir á sparibaukum verða 6,35%, vextir á færslusplitti og yfirdrætti án lækkunar 14,25% en vextir á yfirdrætti í virkri niðurgreiðslu 12,25%. Fyrirframgreidd laun verða áfram án vaxta og annars kostnaðar. Vaxtalækkunin á veltureikningum tekur gildi 17. nóvember en á sparibaukum og öllum lánum í dag. Í tilkynningu segir að viðskiptavinir indó séu í dag rúmlega 94 þúsund, þar af notar rúmlega helmingur indó í hverri viku í sín daglegu heimilisútgjöld.
Fjármálafyrirtæki Mest lesið Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Viðskipti innlent Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Samstarf Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Viðskipti innlent Jón Örn genginn í eigendahópinn Viðskipti innlent „Það sem áður var sígó-pásan er nú jóga-pásan“ Atvinnulíf Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Viðskipti innlent Icewear Garn opnar í Kringlunni Samstarf Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Samstarf Fleiri fréttir Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira