Mægðurnar Vanda Sig og Dísa sögðu fokk við ofbeldi Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 15. september 2025 20:32 Vanda Sigurgeirsdóttir mætti ásamt dóttur sinni, Dísu Jakobsdóttur, á FO viðburð UN Women. Sunna Ben Fjölmenni sótti FO-viðburð UN Women á Íslandi sem fram fór í Mannréttindahúsinu á föstudag. Fyrirsætur herferðarinnar voru á meðal gesta, en nokkur þjóðþekkt andlit sátu fyrir í herferðinni í ár.
Meðal gesta voru Vanda Sigurgeirsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Magnús Karl Magnússon prófessor, Embla Bachmann rithöfundur, Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ og Helga Lilja Magnúsdóttir, hönnuður FO-bolsins. Plötusnúðurinn Benni B-Ruff þeytti skífum og stemningin var mjög góð. Börn og fullorðnir skrifuðu skilaboð til afganskra kvenna.Sunna Ben Í fréttatilkynningu segir: „FO-bolurinn styður við starf UN Women í Afganistan en starfsemi stofnunarinnar hefur tekið stakkaskiptum frá því að talíbanar tóku völd í annað sinn þann 15. ágúst 2021. Þrátt fyrir það eru umfangsmestu verkefni UN Women einmitt í Afganistan. UN Women í Afganistan safnaði skilaboðunum frá afgönskum konum í tengslum við herferðina – skilaboðum sem konurnar vildu koma áfram til Íslendinga. Þær segjast búa yfir óbilandi styrk og von um bjartari framtíð en biðja alþjóðasamfélagið um að gleyma þeim ekki. Á FO-viðburðinum bauðst gestum til þess að skrifa skilaboð til baka til afganskra kvenna sem UN Women á Íslandi mun senda út til Afganistan. Sala FO-bolsins hefur farið vel af stað. Þegar hafa um 200 bolir selst á aðeins tveimur dögum og því mikilvægt að hafa hraðar hendur, ætli fólk að tryggja sér eintak. Bolurinn var framleiddur í takmörkuðu upplagi, kostar 7.990 krónur og fæst á unwomen.is og í versluninni Kiosk á Granda. Verkefnið er styrkt af Öryggismiðstöðinni og rennur allur ágóði til verkefna UN Women í Afganistan.“ Hér má sjá myndir frá viðburðinum: Magnús Karl Magnússon og Jakob Frímann Þorsteinsson.Sunna Ben Ungi rithöfundurinn Embla Bachmann í góðum félagsskap.Sunna Ben Gestir skrifuðu falleg skilaboð.Sunna Ben Aperol Spritz!Sunna Ben Charlotte Biering og Áslaug Eva Björnsdóttir.Sunna Ben Stella Samúelsdóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.Sunna Ben Ása Ottesen og glæsilegur hópur stúlkna.Sunna Ben Afgnaskar konur búsettar á Íslandi mættu.Sunna Ben Rakel McMahon og Oddur Ástráðsson.Sunna Ben Mist Þormóðsdóttir Grönvold.Sunna Ben Benni B-Ruff þeytti skífum.Sunna Ben
Samkvæmislífið Tíska og hönnun Mannréttindi Kynbundið ofbeldi Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira