Fótbolti

Breiða­blik fer til Moldóvu

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Valgeir Valgeirsson skoraði örlagaríkt sjálfsmark í kvöld en vonin um Sambandsdeildina lifir.
Valgeir Valgeirsson skoraði örlagaríkt sjálfsmark í kvöld en vonin um Sambandsdeildina lifir. vísir / ernir

Breiðablik er á leiðinni til Moldóvu og mætir Milsami í umspili upp á sæti í Sambandsdeildinni. Fyrri leikurinn fer fram á Kópavogsvelli næsta fimmtudag og sá síðari á heimavelli Milsami þarnæsta fimmtudag.

Breiðablik tapaði fyrr í kvöld einvígi sínu gegn Zrinskij Mostar frá Bosníu/Hersegóvínu og mætir tapliðinu úr einvígi Virtus frá San Marínó og Milsami frá Moldóvu.

Allt leit út fyrir að Virtus myndi tapa en liðinu tókst að snúa einvíginu við í seinni leiknum og fór með samanlagðan 5-3 sigur.

Breiðablik mætir því Milsami en drátturinn telst nokkuð hagstæður Breiðabliki þar sem mun sterkari lið voru í pottinum.

Breiðablik fær fyrri leikinn á heimavelli, fimmtudaginn 21. ágúst, og spilar svo seinni leikinn á útivelli, 28. ágúst. Sigurvegari einvígisins tryggir sér sæti í Sambandsdeildinni.

Blikarnir fá frí milli leikja því deildarleik þeirra við ÍA, sem átti að fara fram sunnudaginn 24. ágúst, hefur verið frestað til 11. september.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×