Hártog er harðbannað og ekki skylda að vera með tagl Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. ágúst 2025 17:22 Linda Líf gerði ekkert af sér, annað en Sóley María, hvort sem það var óvart eða ekki. vísir / diego Umræða um hártog í kvennafótbolta hefur skotið upp höfði hér á landi en starfsmaður hjá dómaranefnd KSÍ segir hártog harðbannað og alltaf verðskulda rautt spjald, sama hvort það hafi verið óvart eða ekki. Leikmenn megi spila með slegið hár og séu ekki skyldugir til að setja hárið í teygju, það sé á ábyrgð hins aðilans að toga ekki í hárið.
Umræðan spratt upp eftir að Sóley María Steinarsdóttir reif í hárið á Lindu Líf Boama í leik Þróttar og Víkings. Sóley fékk beint rautt spjald og var síðan dæmd í tveggja leikja bann. Mist Rúnarsdóttir velti því fyrir sér í þætti Bestu markanna hvort Sóley hefði átt rauða spjaldið skilið og sagði það harðan dóm. Mist sagðist hundrað prósent viss um að Sóley hafi ekki togað viljandi í hárið, það hafi bara flækst fyrir þegar hún ætlaði að toga í treyju. Óvart eða ekki skiptir engu Vísir spurði Þórodd Hjaltalín, starfsmann hjá dómaranefnd KSÍ, hvort hártog kallaði alltaf á rautt spjald. „Hártog er bara rautt spjald“ segir Þóroddur og gerir engan greinarmun á því hvort hártog sé óvart eða ekki. „Nei, útkoman er bara að hún togaði í hárið á henni. Þannig að það er bara rautt spjald.“ Ekkert í reglunum sem bannar slegið hár Í viðtali eftir leikinn sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Þróttar, að hann setti „spurningamerki við að vera með slegið hár, hvort það eigi ekki að vera með tagl eða eitthvað svoleiðis.“ Svarið við því spurningamerki segir Þóroddur vera einfaldlega nei. Leikmönnum ber ekki skylda til að setja teygju í hárið. „Það er ekkert í reglunum sem bannar slegið hár. Eina sem er í reglunum er að hárspennur eru bannaðar, þær geta verið hættulegar og eru flokkaðar eins og skartgripir. En það er ekkert í reglunum sem bannar leikmönnum að spila með slegið hárið.“ Svo má líka nefna að út frá myndum að dæma þá var Linda Líf með hárið í tagli í þessum umrædda leik. Linda Líf í leiknum umrædda.vísir / diego
Besta deild kvenna KSÍ Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira