Erlent

Níu látnir er landamæradeilur blossa upp

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Taílenskt heimili varð fyrir stórskotaliðsárás í morgun.
Taílenskt heimili varð fyrir stórskotaliðsárás í morgun. Taílenski herinn

Til átaka hefur komið á milli hermanna Tælands og Kambódíu og níu almennir borgarar hið minnsta hafa látið lífið í átökunum. Bardagarnir hófust á svæði sem löndin tvö deila um og saka Tælendingar Kambódíumenn um að hafa skotið eldflaugum á þorp innan landamæra Tælands og á spítala í grenndinni einnig.

Tælendingar segjast hafa svarað árásunum með því að gera loftárásir á hernaðarlega innviði í Kambódíu. Tælendingar hafa einnig lokað landamærunum að Kambódíu og biðla til tælenskra ríkisborgara að þeir yfirgefi landið hið snarasta. Utanríkisráðherra Kambódíu fordæmdi síðan í morgun framferði Tælendinga sem hann kallaði hættulegt og fullyrti að árásir Tælendinga á skotmörk í Kambódíu hefðu verið að tilefnislausu.

Deilan um landsvæðið hefur staðið í áraraðir en með átökunum nú hefur spennan á svæðinu færst á næsta stig, segir fréttamaður breska ríkisútvarpsins á svæðinu.

Hun Manet forsætisráðherra Kambódíu hefur beðið öryggisráð Sameinuðu þjóðanna um að halda neyðarfund til að freista þess að binda enda á átökin áður en þau vinda frekar upp á sig.

„Í ljósi afar alvarlegra árása Taílands, sem ógna friði og stöðugleika á svæðinu, bið ég ykkur eindregið um að boða til bráðafundar í öryggisráðinu til að stöðva árásir Taílands,“ skrifaði Hun Manet forsætisráðherra Asim Iftikhar Ahmad, forseta ráðsins, í bréfi í morgun.

Hann hefur jafnframt birt yfirlýsingu á samfélagsmiðlum. Hann segir Kambódíu ekki hafa annarra kosta völ en að gjalda líku líkt.

Líkt og fyrr segir hafa landamæradeilur Kambódíu og Taílands blossað upp með reglulegu millibili síðustu ár en hana má í raun rekja allt til nýlendutímans. Árið 2008 jókst spennan umtalsvert þegar Kambódía sótti um að fá búddískt hof frá miðöldum skráð á heimsminjaskrá Unesco en því mótmælti Taíland harðlega enda gera bæði lönd tilkall til þess landsvæðis sem hofið er á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×