Þjóðverjar sendu íslensku strákana niður í B-deildina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2025 14:22 Kristján Fannar Ingólfsson skoraði 25 stig á móti Þjóðverjum í dag. FIBA Basketball Íslenska tuttugu ára landslið karla í körfubolta féll í B-deild Evrópukeppninnar í dag eftir tap á móti Þjóðverjum í leiknum um þrettánda sætið.
Liðin í fjórtánda, fimmtánda og sextánda sæti féllu úr A-deildinni. Íslenska liðið veitti Þjóðverjum verðuga mótstöðu í dag en gaf eftir í blálokin. Ísland var 55-54 yfir en Þjóðverjar unnu síðustu þrjár mínútur leiksins 9-1 og tryggðu sér sjö stiga sigur, 63-56. Kristján Fannar Ingólfsson var langatkvæðamestur í íslenska liðinu með 25 stig en hann skoraði fimm þrista. Friðrik Leó Curtis var með 12 stig og 8 fráköst en enginn annar í íslenska liðinu skoraði meira en sex stig. Þýska liðið byrjaði leikinn mun betur og vann fyrsta leikhlutann 17-11. Þjóðverja héldu Friðrik Leó stigalausum fyrstu fimmtán mínútur leiksins eða þangað til að hann minnkaði muninn í 15-23 um miðjan annan leikhluta. Íslensku strákarnir minnkuðu muninn í fjögur stig fyrir hálfleik, 27-23, og komu síðan frábærlega inn í seinni hálfleikinn. Kristján Fannar var mjög góður í sigrinum á Úkraínu í gær og hann var rosalegur í þriðja leikhlutanum þar sem hann skoraði þrettán stig eða tveimur meira en allt þýska liðið. Íslenska liðið vann þriðja leikhlutann 19-11 og tók frumkvæðið í leiknum. Fjórði leikhlutinn var mjög jafn en þýska liðið átti meira inni í lokin og tókst að tryggja sér áframhaldandi veru í A-deildinni.
Landslið karla í körfubolta Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira