Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Kristján Már Unnarsson skrifar 13. júlí 2025 22:32 Áhöfn þotu Icelandair ásamt ráðamönnum Glasgow-flugvallar. Icelandair/Glasgow-flugvöllur Icelandair fagnar því um þessar mundir að áttatíu ár eru liðin frá fyrsta millilandaflugi Íslendinga. Afmælisins var sérstaklega minnst á flugvellinum í Glasgow í fyrradag en fyrsta flugið frá Íslandi var einmitt til Skotlands.
Í tilkynningu Glasgow-flugvallar kemur fram að Icelandair og flugvöllurinn hafi til hátíðarbrigða staðið fyrir ýmsum uppákomum. Farþegum hafi verið boðið upp á köku og þeir leystir út með gjöf. Þá bjóði Icelandair upp á sérstakan 80 punda afslátt af Saga Premium-farmiðum. Sekkjapípuleikari tók á móti áhöfn og farþegum Vatnajökuls, Boeing 757-þotu Icelandair.Icelandair/Glasgow-flugvöllur Það var þann 11. júlí árið 1945 sem Catalina-flugbátur Flugfélags Íslands tók á loft frá Reykjavík, fyrsta farþegaflugvélin á leið í millilandaflug á vegum íslensks flugfélags. Áfangastaðurinn var Largs-flói vestur af Glasgow. Fjórir Íslendingar skipuðu áhöfn flugbátsins. Flugstjóri var Jóhannes R. Snorrason og aðstoðarflugmaður Smári Karlsson. Sigurður Ingólfsson var flugvélstjóri og Jóhann Gíslason loftskeytamaður. Farþegar voru fjórir, þar af þrír íslenskir heildsalar á leið til Bretlands í leit að nýjum viðskiptatækifærum, stórkaupmennirnir Hans Þórðarson, Jón Jóhannesson og Jón Einarsson, en fjórði farþeginn var séra Róbert Jack. Einnig voru tveir breskir hermenn með um borð að kröfu breskra hernaðaryfirvalda. Strandbærinn Largs þjónaði sem flugbækistöð fyrir Catalina-flugbáta á árum síðari heimsstyrjaldar. Á sögusíðu um bæinn segir að flugferð Flugfélags Íslands frá Reykjavík til Largs þann 11. júlí 1945 hafi verið fyrsta áætlunarflug með farþega milli landa innan Evrópu eftir að stríðinu lauk.Oldlargs.com Flogið var í sjöþúsund feta hæð og tók flugið sex klukkustundir og fjórar mínútur. Til samanburðar nefnir Icelandair að flugferðin núna milli Keflavíkur og Glasgow taki um tvær og hálfa klukkustund. Í lýsingu af flugferðinni segir að þegar flugvélin var lent hafi farþegar staðið upp og hrópað ferfalt húrra fyrir flugmönnunum. Morguninn eftir hafi flugvélin snúið aftur til Íslands og lenti á Skerjafirði við Reykjavík sex tímum síðar. Engir farþegar hafi verið til Íslands. Catalina-flugbátur við afgreiðslu Flugfélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli. Þessar flugvélar voru í þjónustu Flugfélagsins á árunum 1944 til 1961.Mynd/Flugmálafélag Íslands Flugstjórinn, Jóhannes R. Snorrason, sagði síðar frá: „Okkur var mjög vinsamlega tekið í Largs og fyrirmenn bæjarins buðu okkur til tedrykkju á fögrum stað og spurðu margra spurninga um Flugfélagið og þjóðina, sem hafði hafið millilandaflug, meðan þjóðir Evrópu voru enn að sleikja sár sín eftir ófriðinn“. Á þessum áttatíu árum hefur millilandaflugi Íslendinga aldeilis vaxið fiskur um hrygg, eins og fjallað er um hér: Flugstarfsemi hefur á þessum áratugum orðið einn af þýðingarmestu þáttum efnahagslífsins, eins og fræðast má um í þáttaröðinni Flugþjóðinni: Icelandair-fólk hefur aðra ástæðu til að fagna þessa dagana. Í mánaðarlegu yfirliti flugtölfræðiveitunnar Cirium kemur fram að Icelandair hafi verið stundvísasta flugfélag Evrópu í júnímánuði. Danska flugfréttasíðan Check-in segir að Icelandair hafi þar með komið í veg fyrir að SAS hampaði þeim titli þriðja mánuðinn í röð.
Fréttir af flugi Icelandair Skotland Reykjavíkurflugvöllur Flugþjóðin Tengdar fréttir Skrúfuþoturnar sem byltu millilandaflugi Íslendinga Kaup Flugfélags Íslands á tveimur Vickers Viscount-skrúfuþotum árið 1957 byltu millilandaflugi Íslendinga. Þær voru fyrstu íslensku flugvélarnar með jafnþrýstibúnaði og gátu flogið mun hærra og hraðar en áður þekktist. 11. september 2024 12:20 Koma fyrstu þotunnar einn af hápunktum flugsögu Íslands Koma Gullfaxa, fyrstu þotunnar, er einn af hápunktum flugsögu Íslendinga. Í þættinum Flugþjóðin á Stöð 2 rifja fyrrverandi starfsmenn Flugfélags Íslands upp þætti úr sögu félagsins, þar á meðal daginn þegar Boeing 727-þotan lenti á Reykjavíkurflugvelli í júnímánuði 1967. 15. september 2024 07:27 Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Hjá íslenskum flugfélögum starfa núna um eittþúsund flugmenn og um tvöþúsund flugfreyjur og flugþjónar. Störfin sem tengjast flugrekstri Íslendinga eru þó margfalt fleiri. 26. september 2024 17:17 Forréttindi fyrir fámenna þjóð að hafa jafn öflugar flugsamgöngur Uppbygging Keflavíkurflugvallar sem tengimiðstöðvar hefur fært Íslendingum mikla hagsæld og lífsgæði og eru brottfarir í flugi frá Íslandi til Norður-Ameríku núna fleiri en frá öllum hinum Norðurlöndunum til samans. 23. september 2024 21:45 Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira
Skrúfuþoturnar sem byltu millilandaflugi Íslendinga Kaup Flugfélags Íslands á tveimur Vickers Viscount-skrúfuþotum árið 1957 byltu millilandaflugi Íslendinga. Þær voru fyrstu íslensku flugvélarnar með jafnþrýstibúnaði og gátu flogið mun hærra og hraðar en áður þekktist. 11. september 2024 12:20
Koma fyrstu þotunnar einn af hápunktum flugsögu Íslands Koma Gullfaxa, fyrstu þotunnar, er einn af hápunktum flugsögu Íslendinga. Í þættinum Flugþjóðin á Stöð 2 rifja fyrrverandi starfsmenn Flugfélags Íslands upp þætti úr sögu félagsins, þar á meðal daginn þegar Boeing 727-þotan lenti á Reykjavíkurflugvelli í júnímánuði 1967. 15. september 2024 07:27
Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Hjá íslenskum flugfélögum starfa núna um eittþúsund flugmenn og um tvöþúsund flugfreyjur og flugþjónar. Störfin sem tengjast flugrekstri Íslendinga eru þó margfalt fleiri. 26. september 2024 17:17
Forréttindi fyrir fámenna þjóð að hafa jafn öflugar flugsamgöngur Uppbygging Keflavíkurflugvallar sem tengimiðstöðvar hefur fært Íslendingum mikla hagsæld og lífsgæði og eru brottfarir í flugi frá Íslandi til Norður-Ameríku núna fleiri en frá öllum hinum Norðurlöndunum til samans. 23. september 2024 21:45