Innlent

Ís­land leggur til fólk á rúss­nesku landa­mærin

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Frá æfingu finnska hersins fyrr á árinu.
Frá æfingu finnska hersins fyrr á árinu. EPA/Pirjo Tuominen

Íslenskir borgaralegir sérfræðingar munu sinna störfum á herstjórnarmiðstöð við landamæri Rússlands og Finnlands. Um ræðir verkefni sem Svíþjóð fer fyrir og er hluti af auknum viðbúnaði Atlantshafsbandalagsins við landamæri þess við Rússland.

Á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem haldinn var í Haag í júní var greint frá því að Ísland tæki þátt í svokölluðum framvarðarsveitum bandalagsins í norðanverðu Finnlandi. Í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu segir utanríkisráðuneytið að sveitinni sé ætlað að styðja við æfingar og viðveru hreyfanlegs liðsafla frá bandalagsríkjum.

„Miðstöðin sem styður við verkefnið og liðsaflann sem kemur til Finnlands, samanstendur af hermönnum og borgarlegu starfsfólki og mun Íslands leggja til borgaralega starfsmenn eins og víða innan Atlantshafsbandalagsins m.a. í Eystrasaltsríkjunum og í fjölmörgum herstjórnarmiðstöðvum bandalagsins,“ segir ráðuneytið.

Verkefnið hefur verið í undirbúningi um nokkurt skeið. Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ákváðu 14. júní á síðasta ári að setja það á laggirnar en Svíþjóð sér svokallað leiðandi ríki og sér um mestu undirbúningsvinnuna ásamt Finnlandi sem gistiríki. Verkefnið verður fullunnið árið 2027 og því liggur eðli þátttöku Íslands í því ekki ljóst fyrir.

Ægir Þór Eysteinsson, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytsisins, tekur sem dæmi um íslensk framlög til framvarðarsveitarinnar upplýsingafulltrúa og pólitíska ráðgjafa.

Eftir leiðtogafundinn í júní var svo loks greint frekar frá verkefninu og fram kom að ásamt Íslandi og fyrrnefndum Norðurlöndum tækju einnig þátt Danmörk, Frakkland, Noregur og Bretland. Það vakti athygli í Svíþjóð vikunni að Bandaríkin hygðust ekki taka þátt í verkefninu. Greint var frá því á vefum utanríkis- og varnarmálaráðuneyta þátttökuþjóða að verkefnið sendi skýr skilaboð um viðbragðsstöðu bandalagsins gagnvart óvinum úr austri, jafnt við Svartahafið og í hánorðri.

Herstjórnarmiðstöðvarnar sem Íslendingar munu taka þátt í að sinna verða staðsettar í Rovaniemi- og Sodankylä í norðanverðu Finnlandi og sunnanverðu Samalandi.

„Með því að skapa aðstæður til skjótvirkrar móttöku, samþættingar og viðbúnaðar bandalagsherdeilda á svæðinu mun framvarðarsveitin í Finnlandi styrkja varnarstöðu og fælingarmátt Atlantshafsbandalagsins gagnvart Rússlandi,“ segir í tilkynningu varnar- og utanríkismálaráðuneyta þátttökuþjóða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×