Ofboðslega falleg berskjöldun Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 7. júlí 2025 18:03 Fjöllistakonan Bryndís Magnúsdóttir var að opna sýningu. Aðsend „Fyrir mér þýðir þetta bara að ég sé að fylgja sjálfri mér og gera það sem ég elska að vera gera,“ segir fjöllistakonan Bryndís Magnúsdóttir sem var að opna sína fyrstu einkasýningu.
Bryndís er fædd árið 1997 og uppalin í Reykjavík en hún útskrifaðist með BA gráðu í vöruhönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2022. Fram til þessa hefur hún þátt í samsýningum erlendis og hér heima og leikur sér sérstaklega með mörk myndlistar og hönnunar ásamt því að rannsaka skörunina þar á milli. Verk hennar geta verið ögrandi og tjáningarrík en meining þeirra oft dulinn áhorfandanum. Það var líf og fjör á opnuninni.Aðsend Í fréttatilkynningu segir: „Sýningin Strengur er fyrsta einkasýning Bryndísar, sem haldin er í Herma, nýju sýningarrými á Hverfisgötu 4. Í sýningunni leiðir hún okkur inn í rými þar sem sammannleg tengsl eru könnuð, þau sem við finnum með skynfærunum og hin sem búa undir yfirborðinu. Hvað er það sem tengir okkur? Hver eru ósýnilegu böndin sem liggja á milli manna, minninga og efnis? Verkin teygja sig yfir ólíkar miðlanir, þar sem áferð, hreyfing og nánd gegna lykilhlutverki. Þau eru eins konar þræðing milli hins áþreifanlega og þess óáþreifanlega, milli líkama og tilfinninga, efnis og merkingar.“ Sýningin stendur til og með 9. júlí í sýningarrýminu Herma.Aðsend Á sýningunni verður áhorfandinn þátttakandi í samtali sem á sér stað án orða, þar sem strengurinn, sem myndlíking eða form, dregur fram þá ósýnilegu þræði sem binda okkur saman. „Í þessari sýningu skoða ég tengsl út frá víðu sjónarhorni, en þó aðallega á milli manneskja. Ég hef verið mjög forvitinn um þá ólíku þræði sem tengja okkur. Sumt er augljóst og sjáanlegt. Annað er meira falið. Ég byrjaði að vinna með þræði þar sem þeir bera með sér bæði veikleika og styrk, svipað og mannleg tengsl eru oft. Sýningin varð leið til þess að kanna dýpra,“ segir Bryndís og bætir við að tilfinningin við að opna sýningu sé ótrúlega góð. Meðal verka Bryndísar á sýningunni.Aðsend „Það er gaman að fá að deila uppskerunni með fólki og fá viðbrögð á sama tíma. Þetta er að sjálfsögðu mikil berskjöldun, sem mér finnst ofboðslega fallegt. Fyrir mér þýðir það bara að ég sé að fylgja sjálfri mér og gera það sem ég elska að vera gera.“ Sýningin stendur til og með 9. júlí næstkomandi.
Myndlist Sýningar á Íslandi Menning Tíska og hönnun Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin Lífið Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana Tónlist Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fleiri fréttir Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Krefja Apple um íslensku Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Íbúar furða sig á horfnu listaverki Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Ævar Þór, Birna og Jón hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Hafnfirðingar vinna að sýningu um Bó Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Sjá meira