Ágætu fyrrum samstarfsaðilar á Þjóðminjasafni Íslands Uggi Jónsson skrifar 4. júlí 2025 23:01 Ég þakka innilega fyrir það traust sem þið hafið sýnt mér um árabil með því að bera undir mig ýmsa texta í nafni eins af fáum (3) höfuðsöfnum Íslands. Það hefur verið ómetanlegur heiður og honum mun ég ei gleyma svo lengi eða skammt sem ég lifi. Hvort heldur verður ofan á er önnur saga sem er engin sérstök ástæða til að spá mikið í, því öðrum og hryllilegri sögum hefur á undanförnum misserum undið fram á Þjóðminjasafni Íslands, einu af höfuðdjásnum þjóðarinnar, og bitnað harkalega á safninu sjálfu og ekki síður starfsfólki þess (sjá t.d. þetta stuðandi viðtal við tvo fyrrum starfsmenn safnsins, sem birtist fyrir liðlega mánuði: https://www.visir.is/g/20252732442d/segja-ognar-stjorn-rikja-a-thjod-minja-safninu). Erindið mitt smáa með þessum pistli er þó reyndar bara eitt og kem ég nú að því: Af augljósum ástæðum, sem ljósar eru þeim sem mig þekkja og snerta gríðarlegt óþol mitt þar sem rangindi eru annars vegar, og því miður er nú runnin upp sú stund, eftir nokkuð stífar og tiltölulega samviskusamlegar umþenkingar undanfarnar vikur, að ég sé mér ekki annað fært en að hætta sem yfirlesari Þjóðminjasafnsins. Þetta gerist á þjóðhátíðardegi hinna frjálsu í landi hinna hugrökku (Land of the Free, Home of the Brave) og til hamingju með daginn, þið Bandaríkjamenn, Vestur-Íslendingar og Norður-Ameríkuvinir sem mögulega lesið þessar mínar fátæklegu hugleiðingar. (Ef til vill er óviðeigandi, og sjálfsagt óþarft í samhenginu, að nefna það akkúrat í dag að ég hef hugleitt alvarlega hvort þetta land hinna hugrökku er sé yfirleitt til eða hvort það er horfið úr augsýn, rétt eins og fjöld starfsmanna Þjóðminjasafns Íslands sl. tvö ár eða svo, rétt eins og fjöld starfsmanna sem hurfu úr starfi á Listasafni Íslands meðan Harpa Þórsdóttir var þar við völd sem hún réði ekki vel við, viðlíka völd og hún ræður heldur ekki við en hefur einhverra hluta vegna – kannski af því að svona nokkuð þykir bara frekar venjulegur föðurarfur í landi okkar sem vorum kannski einhvern tíma hugrökk þjóð en erum sennilega eitthvað allt annað á okkar dögum; en það er alltaf von um að hlutir breytist, jafnvel heilar þjóðir, því sagan sýnir að slíkt hefur gerst í nánast hverju einasta landi sem einhverjar heimildir eru til um, en þetta var útúrdúr og ég gæti sosum alveg smíðað annan enn lengri og lítt notalegan í anda ofannefnds viðtals, þar sem drepið var á nokkra ódæðislega þætti í fari Margrétar Hallgrímsdóttur sem veitti Þjóðminjasafninu forstöðu ansi lengi, að sumum fannst – en hvað er næstum aldarfjórðungur (2000–2022) milli vina? Margrét starfaði reyndar við safnið á góðum tímum: frá 1998 til 2004 var safnið lokað vegna lagfæringa sem leiddu til þess að þegar við loks komumst inn í það aftur var það sem nýtt og meirihluta þessa endurnýjunartímabils var Margrét við stjórn í safninu. Takk, Margrét! Í sama útúrdúrnum gæti ég minnst á vinkvennahyglarann Lilja Alfreðsdóttur, en það ætla ég heldur ekki að gera. Hvað þá heldur rifja upp notalegheit Katrínar Jakobsdóttur við Margréti þegar hún var alveg búin að fá upp í kok endalausa setu sína á volgum stóli Þórs Magnússonar – eða fékk hún kannski nýjan stól árið 2000? eða er þetta alltaf sami stóllinn, forngripur og þar með fornminjar, og velgdur mann fram af manni, konu fram af konu? En þetta ætla ég ekki að minnast neitt á og við skulum ekki eyða helginni í að hugsa neitt um hluti sem liggja í þagnargildinu dýrmæta. Á morgun er veðrið til að mynda einkar hagstætt safnavinum og upplagt að fara á Þjóðminjasafnið og Listasafn Íslands og Kjarvalsstaði og sjá mjög hrífandi listaverk. Gerið það endilega og ef Guð lofar er aldrei að vita nema þið komið auga á höfund þessara hugleiðinga lúskrast milli sala og glápa á hvað sem fyrir ber. Ef ég er þá yfirleitt til ... etc. Með minni hinstu kveðju til ógnarstjórnarinnar, eins og hún er kölluð, ber ég í einlægni fram ósk um að hún sjái að sér. Að lokum óska ég öllum eftirlifandi starfsmönnum Listasafns Íslands og Þjóðminjasafns Íslands til hamingju með lífið (þetta er tilvitnun í titil einnar bestu ljóðabókar ársins 2023, eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur þúsundlistasmiðs). Grein þessi er tileinkuð Helenu Mirru og Þorvaldi Óttari, fyrrum hetjum í safnastarfi. Höfundur fer fyrir samtökunum FTA,FY sem munu ekki hafa meira um þetta mál að segja; fleiri mál bíða í ofvæni eftir að verða tekin fyrir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Söfn Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar