Sautján ára drengur drukknaði á Hróarskeldu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 2. júlí 2025 22:14 Himmelsøen liggur upp við hátíðarsvæðið og er vinsæll baðstaður gesta. Sveitarfélagið Hróarskelda Sautján ára drengur lést í dag á tónlistarhátíðinni í Hróarskeldu á Sjálandi. Hann hafði farið að njóta góða veðursins við bakka Himmelsøen sem liggur rétt utan við hátíðarsvæðið og drukknaði.
Drengurinn kom frá Kaupmannahafnarsvæðinu og var gestur á hátíðinni að sögn lögreglunnar á Miðvestur-Sjálandi en það er Politiken sem greinir frá. Himmelsøen er lítið stöðuvatn sem liggur rétt utan við hátíðarsvæðið og er vinsælt fyrir hátíðargesti að synda þar þegar sólin skín líkt og hún gerði í dag en hitastigið mældist 31 stig þegar hlýjast var. Sjónarvottar sem ræddu við Politiken lýsa því að lokað hafi verið fyrir aðgang að Darupvej sem liggur að vatninu. Þá hafi sjúkrabílar, björgunarsveitarbílar og lögreglubílar keyrt á fleygiferð á hátíðarsvæðinu. Samkvæmt upplýsingum frá Ritzau var björgunarþyrla einnig kölluð út. „Á þessu frumstigi málsins er litið svo á að um slys hafi verið að ræða, rannsókn stendur yfir,“ segir í færslu lögreglunnar. Skipuleggjendur tónlistarhátíðinnar í Hróarskeldu segjast harmi slegnir. „Við erum miður okkar og sendum innilegar samúðarkveðjur til aðstandenda. Við veitum lögreglunni alla þá aðstoð sem við getum,“ segir í tilkynningu frá hátíðarskipuleggjendum en Ekstra Bladet greinir frá.
Hróarskelduhátíðin Danmörk Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira