Innherji

Verðbólgu­væntingar fyrir­tækja og heimila nánast ó­breyttar milli fjórðunga

Hörður Ægisson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri en næsta vaxtaákvörðun peningastefnunefndar er eftir um tvo mánuði, eða þann 20. ágúst næstkomandi.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri en næsta vaxtaákvörðun peningastefnunefndar er eftir um tvo mánuði, eða þann 20. ágúst næstkomandi. Vísir/Anton Brink

Ný könnun á verðbólguvæntingum fyrirtækja og heimila, bæði til skemmri og lengri tíma, sýnir að þær héldust meira og minna óbreyttar á alla mælikvarða og eru því enn vel yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Mælingin veldur peningastefnunefnd, sem kemur næst saman seint í ágústmánuði, væntanlega nokkrum áhyggjum en eftir að verðbólguvæntingar höfðu áður farið smám saman lækkandi eru núna vísbendingar um að tekið sé að hægja á þeirri þróun.


Tengdar fréttir

Kröftug einka­neysla dreif áfram hag­vöxt sem fór langt fram úr væntingum

Fyrsta mat Hagstofunnar um að landsframleiðslan hafi aukist um 2,6 prósent á fyrsta ársfjórðungi, einkum drifin áfram af mikilli innlendri eftirspurn og atvinnuvegafjárfestingu, fór langt fram úr væntingum bæði greinenda og Seðlabankans. Að mati hagfræðinga Arion banka munu hagvaxtartölurnar styðja við vegferð peningastefnunefndar að halda þétt um taumana og velta þeir jafnframt fyrir sér af hverju hátt raunvaxtastig sé ekki að bíta sem skyldi á íslensk heimili.

Var meiri áhætta að stöðva lækkunar­ferlið og sjá aðhaldið aukast yfir sumarið

Ólíkt því sem var fyrir ári síðan þá taldi peningastefnunefndin núna meiri áhættu fylgja því að halda vöxtunum óbreyttum yfir þriggja mánaða tímabil, að sögn seðlabankastjóra, sem hefði getað aukið aðhaldsstigið enn frekar þegar verðbólgan færi að síga niður í sumar. Hann leggur áherslu á að tollastríð Bandaríkjanna gagnvart öllum sínum helstu viðskiptaþjóðum, sem hefur aðeins verið slegið á frest, muni „ekki hafa neitt jákvætt í för með sér fyrir Ísland“ heldur valda minni hagvexti og þá muni ferðaþjónustan líklega verða fyrir höggi vegna veikari Bandaríkjadals.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×