Þrjár erlendar til nýliðanna á Akureyri Sindri Sverrisson skrifar 12. júní 2025 17:16 KA/Þór mætir til leiks með þrjá nýja leikmenn í Olís-deildinni í haust, þær Önnu Petrovics, Trude Blestrud Håkonsen og Bernadett Réka Leiner. KA/Þór KA/Þór staldraði stutt við í Grill 66 deild kvenna í handbolta og eftir að hafa unnið deildina án þess að tapa leik í vetur er liðið nú búið að bæta við sig þremur erlendum leikmönnum fyrir átökin í Olís-deildinni næsta tímabil.
Frá þessu er greint á heimasíðu KA í dag en um er að ræða tvær skyttur og markmann. Trude Blestrud Håkonsen er örvhent skytta sem einnig getur leikið í hægra horninu. Hún er fædd árið 1994 og kemur frá Junkeren í Norður-Noregi þar sem hún hefur spilað frá árinu 2020, og skoraði hún 92 mörk í 22 leikjum í 2. deildinni í vetur. Ungverjarnir tveir, markmaðurinn Bernadett Réka Leiner og skyttan Anna Petrovics, koma fbáðar frá Greenpower JAGS sem hafnaði í 4. sæti austurrísku úrvalsdeildarinnar í vor. Leiner er 26 ára gömul en Petrovics 23 ára. Eins og fyrr segir fór lið KA/Þórs, undir stjórn Jónatans Magnússonar, taplaust í gegnum síðustu leiktíð í Grill 66 deildinni eftir fallið úr Olís-deildinni fyrir ári. Stefán Guðnason, formaður kvennaráðs KA/Þórs, segir að áfram verði áhersla lögð á framþróun uppaldra leikmanna þó að nú bætist við þrír erlendir leikmenn fyrir átökin við bestu lið landsins. „Við viljum að sjálfsögðu spila eins mikið og hægt er á okkar heimastelpum, en það var alveg ljóst að það þurfti að breikka hópinn og styrkja fyrir baráttuna í efstudeild. Koma þremenninganna er klárlega lykilskref fyrir hópinn okkar og teljum við okkur vera að taka rétt skref í framþróun okkar uppöldu leikmanna. Jonni þjálfari hefur margoft sýnt að hann er gríðarlega öflugur í að vinna með og þróa unga leikmenn áfram og verður gaman að sjá hópinn taka næstu skref með þeim Bernadett, Önnu og Trude innanborðs,“ segir Stefán í fréttatilkynningu.
Olís-deild kvenna KA Þór Akureyri Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira