Yamal tekur við tíunni hjá Barcelona Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. maí 2025 11:03 Ungstirnið Lamine Yamal lyftir spænska meistarabikarnum. getty/Gongora Lamine Yamal hefur oftsinnis verið líkt við Lionel Messi og nú bendir flest til þess að hann taki við gamla treyjunúmeri Argentínumannsins hjá Barcelona.
Þrátt fyrir að verða ekki átján ára fyrr en í sumar hefur Yamal afrekað mikið á stuttum ferli, orðið tvöfaldur meistari með Barcelona í vetur og Evrópumeistari með spænska landsliðinu í fyrra, og hann hefur ítrekað verið borinn saman við Messi. Argentínski snillingurinn er fyrrverandi fyrirliði Barcelona og markahæsti leikmaður í sögu félagsins. Í þrettán ár klæddist Messi treyju númer tíu hjá Barcelona en búist er við því að Yamal taki hana eftir að hann skrifar undir nýjan samning við Katalóníufélagið í sumar. Ansu Fati tók við tíunni hjá Barcelona af Messi en ekki hefur ræst úr honum eins og vonir stóðu til og óvissa ríkir um framtíð hans hjá félaginu. Yamal hefur verið í treyju númer nítján hjá Barcelona en Messi var einnig með það númer á bakinu um tíma, bæði hjá Barcelona og argentínska landsliðinu. Barcelona mætir Athletic Bilbao í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn. Börsungar eru orðnir spænskir meistarar en þeir unnu einnig bikarkeppnina og komust í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu.
Spænski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Sjá meira