Tryllt eftirspurn eftir miðum Sindri Sverrisson skrifar 20. maí 2025 11:05 Það var allt pakkað í Umhyggjuhöllinni á sunnudaginn þegar Stjarnan jafnaði einvígið. vísir/Diego Það er ljóst að margfalt færri komast að en vilja, á oddaleik Tindastóls og Stjörnunnar í úrslitaeinvígi Bónus-deildar karla í körfubolta annað kvöld.
Félögin sjá sjálf um að útdeila sínum miðum og hafa Stjörnumenn, sem boðað höfðu opna miðasölu á Dúllubar síðdegis í dag, þegar útdeilt öllum sínum miðum. Samkvæmt reglum fær Stjarnan 30 prósent af þeim miðum sem í boði eru en ljóst er að mun fleiri Garðbæingar hefðu viljað fara norður. Stjarnan hefur þó ákveðið að bregðast við áhuganum og er stefnan að sýna beina útsendingu Stöð 2 Sport á félagssvæðinu í Garðabæ, á Dúllubar annað kvöld, ásamt úrslitaleik Evrópudeildarinnar á milli Manchester United og Tottenham sem hefst klukkan 19, klukkutíma fyrir upphaf oddaleiksins. „Miðaeftirspurn hefur náð nýjum hæðum!“ segja Tindastólsmenn og þarf þá heilmikið til eftir ævintýralegan áhuga á leikjum þeirra á undanförnum árum, ekki síst þegar liðið varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn fyrir tveimur árum. Stólarnir selja sína miða í kvöld, eftir að hafa útdeilt miðum til árskortahafa og iðkenda. Í færslu félagsins segir að eftirspurn sé margfalt meiri en framboð en hægt verður að kaupa miða í sjoppunni í íþróttahúsinu í kvöld klukkan 19, og verða aðeins tveir miðar í boði á mann svo búast má við langri röð fólks. Oddaleikur Tindastóls og Stjörnunnar hefst klukkan 20 annað kvöld. Bein útsending á Stöð 2 Sport hefst klukkutíma fyrr, eða klukkan 19.
Bónus-deild karla Stjarnan Tindastóll Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Sjá meira