Bíó og sjónvarp

Frum­sýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glæ­nýrri seríu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Hera Hilmar og Ólafur Darri fara með aðalhlutverkin í þáttunum Reykjavik fusion sem eru væntanlegir á skjáinn í haust.
Hera Hilmar og Ólafur Darri fara með aðalhlutverkin í þáttunum Reykjavik fusion sem eru væntanlegir á skjáinn í haust. Stikla

Ólafur Darri og Hera Hilmar eru á leið á skjáinn í haust í splunkunýrri seríu sem ber heitið Reykjavík fusion. Þættirnir eru fyrstu íslensku sjónvarpsþættirnir til að komast inn á Cannes Series-hátíðina og hlutu standandi lófaklapp þar í lok apríl. 

Lífið á Vísi frumsýnir hér stiklu úr þáttunum en hana smá sjá í spilaranum að neðan: 

Klippa: Fyrsta stikla úr Reykjavík Fusion

Þættirnir verða sýndir á Sjónvarpi Símans og segja frá matreiðslumeistara sem er að reyna að snúa við blaðinu og vinna til baka traust fjölskyldunnar eftir fangelsisvist. 

Þegar allar dyr virðast lokaðar endar hann á að þiggja vafasama peninga frá gömlum félaga úr fangelsinu til að stofna lúxusveitingastað gegn því að þvætta þá í gegnum reksturinn. Þetta setur bæði skilorðið hans og seinna meir líf hans og fjölskyldunnar í hættu.

Þetta er fyrsta sjónvarpsþáttaserían frá framleiðslufyrirtækinu Act4 og kemur hugmyndin frá Herði Rúnarssyni. Hann skrifar seríuna ásamt Birki Blæ Ingólfssyni, sem margir þekkja sem öflugan handritshöfund. 

„Það hefur verið hrikalega gaman að sjá verkefnið fara frá hugmynd að sex þátta sjónvarpsseríu sem er á leið á skjáinn í haust. Við hjá ACT4 lögðum allt í sölurnar til að fara út fyrir hefðbundinn ramma og gera seríu sem er fersk, hröð og spennandi, og jafnast á við það allra besta á alþjóðlegan mælikvarða. 

Allir sem hafa komið að þessu hafa lagt hjarta sitt og sálu í það og það skilar sér svo sannarlega á sjónvarpsskjáinn. Viðbrögðin erlendis hafa verið frábær, hvert sem við höfum farið. Það er því virkilega gaman að geta gefið íslensku þjóðinni smá innsýn inn í seríuna og við hlökkum mikið til að sýna hana í haust í Sjónvarpi Símans,“ segir Hörður. 

Í aðalhlutverkum eru Ólafur Darri og Hera Hilmar, en í þáttunum má líka sjá stóran hóp frábærra leikara eins og Þröst Leó, Unni Birnu Backman, Góa, Þorstein Gunnarsson og fleiri. Leikstjórar seríunnar eru Samúel Bjarki Pétursson og Gunnar Páll Ólafsson.

Birkir Ágústsson, framkvæmdarstjóri miðla hjá Símanum segir mikla tilhlökkun fyrir þáttunum. 

„Reykjavík Fusion eru fyrstu íslensku sjónvarpsþættirnir til að komast inn á Cannes Series hátíðina sem er mikill heiður fyrir Símann auk allra þeirra inn- og erlendu aðila sem koma að þáttunum. 

Íslensk framleiðsla er einfaldlega á heimsmælikvarða og Reykjavík Fusion sýnir það svart á hvítu hvers við erum megnug. Við erum afskaplega spennt að svipta hulunni af þessum frábæru þáttum í haust.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.