Körfubolti

Her­mann Hauks um hegðun Agravanis: Lið í Evrópu vilja hann ekki út af þessu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dimitrios Agravanis varð sér til skammar með framkomu sinni í Garðabæ í kvöld.
Dimitrios Agravanis varð sér til skammar með framkomu sinni í Garðabæ í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Dimitrios Agravanis átti skelfilega innkomu hjá Tindastól í kvöld í úrslitaeinvíginu á móti Stjörnunni sem endaði á því að hann var rekinn út úr húsi. Grikkinn fór endanlega með leikinn fyrir Stólana með framkomu sinni í seinni hálfleik og svo fór að Stólunum var slátrað í leiknum.

Stjarnan jafnaði þar með einvígið í 1-1 og Agravanis verður væntanlega í leikbanni í þriðja leiknum í Síkinu.

„Þetta skemmir ekki bara fyrir honum, því þetta skemmir fyrir öllu liðinu. Einbeitingin fer út í buskann hjá liðinu eins og við sáum trekk í trekk,“ sagði Teitur Örlygsson, sérfræðingur Bónus Körfuboltakvölds, eftir leikinn.

Í körfubolta þá er þetta veikleikamerki

„Hann hélt bara áfram að haga sér svona þegar hann labbaði út af. Í körfubolta þá er þetta veikleikamerki en þeir vildu meina að það hafi hallað á þá í dómgæslunni,“ sagði Teitur.

„Ég kenni í brjósti um Benna að eiga við svona menn, Þetta agaleysi smitaði út frá sér út um allt og eyðilagði allt ‚chemistry' fannst mér hjá Tindastól. Þetta var einn á einn sóknarleikur,“ sagði Teitur.

Hermann Hauksson, sérfræðingur Bónus Körfuboltakvölds, var líka allt annað en hrifinn af framkomu gríska reynsluboltans í Garðabænum.

Tifandi tímasprengja

„Ég er hræddastur við það fyrir hönd Tindastóls að eitt lið geti brotnað svona svakalega. Þá er ég ekki endilega að tala um þennan eina sem var hent út úr húsi,“ sagði Hermann Hauksson.

„Ég sagði fyrir leik að þeir væru sterkari án hans. Þeir gefðu verið það örugglega hér í kvöld. Ég held að Stjarnan vilji frekar að hann fari ekki í bann af því að hann er svo mikil tifandi tímasprengja. Það er svo auðvelt að taka hann úr sambandi,“ sagði Hermann.

„Ástæðan fyrir því að hann er að spila hérna heima er að ég veit að lið í Evrópu vilja hann ekki út af þessu. Hann var ekki valinn í gríska landsliðið af því að menn vilja ekki spila með honum,“ sagði Hermann.

„Hann er með sögu og hann er erfiður. Hann sýndi það svo sannarlega í kvöld,“ sagði Hermann.

Vonast Benni eftir banni?

Teitur Örlygsson hrósaði frammistöðu Benedikts Guðmundssonar í viðtali eftir leikinn.

„Þetta var rétt sem Benni sagði. Leikurinn fór gjörsamlega þarna. Svo fannst mér skína í gegn eins og Benni nánast voni að hann verði dæmdur í eins leiks leikbann því þá þarf hann ekki að eiga við hann,“ sagði Teitur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×