Menning

Opnaði sumarið með sól­ríkum stæl

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Skúli Gunnlaugsson og Sigurður Árni á opnun þess síðarnefnda í Ásmundarsal.
Skúli Gunnlaugsson og Sigurður Árni á opnun þess síðarnefnda í Ásmundarsal. Ásmundarsalur

Margt var um manninn á sólríkri opnun einkasýningar Sigurðar Árna „Litarek“ í Ásmundarsal laugardaginn 3. maí. Á meðal gesta mátti sjá fjölbreyttan hóp listunnenda, listamanna, safnara og fólki úr menningar-og listalífi borgarinnar sem nutu sín innan um litrík og leikandi verk Sigurðar.

Stöðug og spennandi leit að litnum

„Í Ásmundarsal sýni ég stór verk sem hafa öll óræða vídd sem er á milli strigans og litaflatarins. Í þessum nýju verkum skil ég svo eftir ósnertan striga allan hringinn sem verður svona skemmtileg ögrun vegna þess að með því afbyggi ég hugmyndina sem ég er byrjaði með. Þannig bý ég til einskonar þrívídd, eða nýja vídd sem ég brýt svo niður á sama tíma,“ segir Sigurður Árni.

Hann hefur í fjölda ára einbeitt sér að rýmisskynjun í verkum sínum og skoðað hvernig uppbrot á hinni vanabundnu skynjun getur haft verkun sína langt út fyrir myndflötinn. Á einkasýningu sinni í Ásmundarsal heldur hann rannsókn sinni áfram og sýnir stórskala málverk og speglaverk.

„Það er skemmtilegt að kljást við að leita að litnum sem maður er með einhvers staðar í kollinum eða sér fyrir sér í huganum, sem er síðan ekkert alltaf svo auðvelt að framkalla í rauninni.“

Fór á Feneyjartvíæringinn og er með verk í Pompidou

Sigurður Árni hefur starfað jöfnum höndum í Reykjavík og Frakklandi frá því hann lauk listnámi í París árið 2991. Verk eftir Sigurð Árna er að finna í öllum helstu listasöfnum á Íslandi sem og í opinberum söfnum og einkasöfnum víða í Evrópu.

Má þar nefna að nýlega eignaðist nútímalistasafnið Centre Pompidou í París verk eftir listamanninn. Hann var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum á Ítalíu árið 1999 og árið 2020 var stór yfirlitssýning sett upp í Listasafni Reykjavíkur.

Sýningin stendur til 12. maí og er aðgangur ókeypis. Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni:

Ólöf Rut og Helga sýningarstjórar í Ásmundarsal.Ásmundarsalur
Sigurður, Elísabet og Pétur Freyr eigendur Vest, Skúli Gunnlaugs og Ólöf Sigríður.Ásmundarsalur
Svanhildur Konráðsdóttir í góðum félagsskap.Ásmundarsalur
Einar Falur og Þorsteinn J hressir og kátir. Ásmundarsalur
Harpa og Helga velja á milli uppáhaldsverka.Ásmundarsalur
Gestir í góðum fíling!Ásmundarsalur
Sigurður Árni tekur sig vel út í bók frá Ásmundarsal.Ásmundarsalur
Listunnandi í geggjuðum jakka.Ásmundarsalur
Verkin eru litrík og stór!Ásmundarsalur
Gunnhildur Melsteð arkitekt hjá Kurtogpí.Ásmundarsalur
Safnstjórarnir Ólöf Kristín og Heiða á góðu spjalli.Ásmundarsalur
Sigurður og Ingibjörg hjá Listasafni Íslands.Ásmundarsalur
Helga Ósk Hlynsdóttir, Harpa Björnsdóttir og Gunnhildur Melsteð.Ásmundarsalur
Verkin speglast í hvert öðru.Ásmundarsalur
Gestir inni í listaverkinu.Ásmundarsalur
Gestur fangar sýninguna á símann.Ásmundarsalur
Sigurður Árni speglast hér í eigin verki.Ásmundarsalur
Það er margt að skoða frá mismunandi sjónarhornum í Ásmundarsal.Ásmundarsalur
Skúli Gunnlaugsson og Sigurður Árni á spjalli. Sigurður Árni mætti í gulri skyrtu í stíl við sólina úti.Ásmundarsalur





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.