Innherji

Eldis­fyrir­tækið Lax­ey klárar nærri tuttugu milljarða fjár­mögnun

Hörður Ægisson skrifar
Stofnendur Laxeyjar: Hallgrímur Steinson, Daði Pálsson, og Lárus Ásgeirsson.
Stofnendur Laxeyjar: Hallgrímur Steinson, Daði Pálsson, og Lárus Ásgeirsson.

Landeldisfyrirtækið Laxey, sem áformar uppbyggingu á fiskeldisstöð í Vestmannaeyjum með árlegri framleiðslugetu upp á 36 þúsund tonn, hefur lokið við um 35 milljóna evra hlutafjáraukningu ásamt því að gera nýtt langtímasamkomulag við Arion banka um lánsfjármögnun. Félagið stefnir að því að hefja fyrstu slátrun á fiski á haustmánuðum þessa árs sem er í samræmi við upphaflega tímalínu.

Samkomulagið við Arion banka felur bæði í sér endurfjármögnun og stækkun á lánalínum vegna fyrsta áfanga, sem og nýja fjármögnun til að styðja við uppbyggingu annars áfanga. Heildarfjármögnun sem tryggð hefur verið með þessari blönduðu hlutafjár- og lánsfjármögnun nú, nemur alls 130 milljónum evra, jafnvirði um 19 milljarða króna, sem er sagt endurspegla mikið traust fagfjárfesta á framtíðarsýn félagsins, að því er segir í tilkynningu.

Arion banki var umsjónaraðili hlutafjárútboðsins en Mar Advisors fjármálaráðgjafi fyrir Laxey.

Laxey hefur frá stofnun safnað yfir 17 milljörðum króna í hlutafé. Síðasta hlutafjáraukning var í fyrra þegar félagið sótti sér samtals um sjö milljarða frá innlendum og fjárfestum. Hlutafjárvirði Laxey í þeirri fjármögnun var um fimmtán milljarðar að því er lesa má út úr ársreikningi Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja sem eignaðist þá um 1,5 prósenta hlut.

Nýjasta fjármögnun Laxey er sögð mikilvægt skref í átt að því að byggja upp ársframleiðslu félagsins í tíu þúsund tonn á hágæða landeldislaxi.

Við finnum fyrir miklum áhuga og áframhaldandi trausti til verkefnisins, bæði frá núverandi og nýjum fjárfestum.

„Hlutafjáraukningin vegna áfanga tvö var borin uppi af núverandi hluthöfum, en öflugir nýir fjárfestar komu einnig að verkefninu. Laxey hefur á að skipa mjög fjölbreyttum og reynslumiklum hluthafahóp, sem samanstendur af bæði erlendum og innlendum fjárfestum og er fjölskylda Sigurjóns Óskarssonar í Vestmannaeyjum áfram leiðandi fjárfestir í félaginu. Þá er um tuttugu prósent hlutur er í eigu innlendra og erlendra aðila með mikla reynslu í fiskeldi sem spannar alla virðiskeðju laxeldis – frá fóðri til sölu og markaðsstarfs,“ segir í tilkynningu.

Þar er um að ræða Blue Future Holding, sem er hluti af þýsku fjölskyldusamsteypunni EW Group, sem var leiðandi fjárfestir í útboðinu á síðasta ári. Aðrir fjárfestar voru meðal annars Nutreco, stærsti framleiðandi á fiskifóðri í heimi, Seaborn, leiðandi söluaðila á laxi, Kjartan Ólafsson, fyrrverandi stjórnarformaður Arnarlax, og öflugt hollenskt sjávarútvegsfyrirtæki.

Í tilkynningu frá félaginu segir að uppbygging Laxey haldi áfram samkvæmt upphaflegri framkvæmdaáætlun og er nú fyrsti áfangi áframeldis á lokametrunum. Seiðastöðin, sem var fullbúin í ágúst 2024, er nú í fullum rekstri og hefur framleiðsla farið afar vel af stað. Fimm hópar hrogna hafa nú þegar verið teknir inn og þroskast í samræmi við áætlanir. Framleiðslugeta stöðvarinnar er allt að 4,6 milljónir seiða á ári.

Undirbúningur er hafinn fyrir slátur- og vinnsluaðstöðu, þar sem stefnt er að fyrstu slátrun haustið 2025, í samræmi við upphaflega tímalínu. Laxey hefur þegar undirritað samninga um tæknibúnað og við samstarfsaðila sem tryggja áreiðanlega og vandaða vinnslu frá fyrsta degi.

„Auk framleiðslu á laxi til manneldis mun Laxey nýta hluta af framleiðslugetu sinni til ræktunar stórseiða sem seld verða til annarra laxeldisfyrirtækja. Með þessari blönduðu nálgun næst meiri sveigjanleiki í rekstri og möguleikar á tekjum áður en matfiskframleiðsla nær hámarki. Sala á stórseiðum til annarra laxeldisfélaga getur dregið úr lúsavandamálum með því að stytta eldistíma í sjó og styrkt rekstraröryggi viðskiptavina,“ segir í tilkynningu.

Upphaflega var verkefnið hannað með heildarframleiðslugetu upp á 27.000 tonn, en með bættri nýtingu á tækjum og tankaplássi, innleiðingu á auknu magni stórseiða og viðbót við eldisaðstöðu hefur áætluð heildarframleiðsla nú verið stækkuð í 36.000 tonn á ári.

„Við finnum fyrir miklum áhuga og áframhaldandi trausti til verkefnisins, bæði frá núverandi og nýjum fjárfestum,“ segir Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður Laxey. „Það er skýr vísbending um að framtíðarsýn okkar – sjálfbært og fjárhagslega sterkt landeldi – eigi fullt erindi bæði í íslenskan sjávarútveg og á alþjóðamarkaði. Sá árangur sem þegar hefur náðst, þar á meðal möguleikinn á tekjumyndun snemma í ferlinu með sölu á stórseiðum, ásamt þeim áhuga sem við finnum frá fjárfestum, staðfestir að við erum á réttri leið.“


Tengdar fréttir

Fyrst­i á­fang­i land­eld­is í Eyj­um mun kost­a 25 millj­arð­a

Félagið Icelandic Land Farmed Salmon (ILFS) vinnur að því að koma á fót landeldi á laxi í Vestmannaeyjum. Horft er til þess að framleiða í fyrsta áfanga um 15 þúsund tonn af laxi á seinni hluta árs 2027 með mögulega stækkun í 30 þús tonn. Um er að ræða um 25 milljarða króna fjárfestingu í fyrsta áfanga. Starfsmenn verða um 100. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×