„Bara einn leikur og áfram með smjörið“ Siggeir Ævarsson skrifar 21. apríl 2025 21:56 Ægir Þór Steinarsson átti stórleik í kvöld en er ennþá með báða fætur á jörðinni Vísir/Pawel Ægir Þór Steinarsson átti sannkallaðan stórleik þegar Stjarnan lagði Grindavík í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Bónus-deildar karla 108-100. Hann var mættur í viðtal við Andra Más Eggertssonar strax eftir leik.
Ægir var beðinn um að segja aðeins frá sínum leik í kvöld sem skilaði 29 stigum og 13 stoðsendingum. „Bara í einhverju flæði, skilurðu? Við náðum aðeins að hraða upp leikinn sem við höfum ekki náð að gera í úrslitakeppninni. Úr því varð bara fínn sóknarleikur á köflum. En þetta er ekkert meira en bara einn leikur og áfram með smjörið sko.“ Ægir átti á köflum frekar greiða leið í gegnum vörn Grindavíkur og sagði að það hefði í raun komið honum aðeins á óvart en lagði jafnframt áherslu á að hans menn þyrftu að spila betri varnarleik. „Maður reynir að vera „agressífur“ þegar maður getur það og vera bara í jafnvægi að finna leikmenn. Við getum gert betur í vörn. Mér fannst það kannski vera einhver fókus, við bara stöldrum við það.“ Stjarnan náði upp smá forskoti fyrir fjórða leikhlutann en Grindvíkingar voru hársbreidd frá því að snúa leiknum við þegar Ólafur Ólafsson minnkaði muninn í tvö stig. „Svo ertu bara að keppa á móti Grindavík og Óli Óli setur fjóra þrista í röð, þá er þetta allt í einu orðinn jafn leikur. Við vissum að þú þarft að vera með fókus í 40 mínútur, ef þú getur það ekki þá taparðu á móti Grindavík.“
Bónus-deild karla Körfubolti Stjarnan Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Baulað á Trump í New York Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Körfubolti Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Fótbolti Fleiri fréttir KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Sjá meira