Allt að 18 stiga hiti á morgun en súld og léttskýjað í dag Lovísa Arnardóttir skrifar 6. apríl 2025 07:30 Það verður eflaust blíða á Akureyri á morgun en léttskýjað í dag. Vísir/Viktor Freyr Í dag má búast við sunnan og suðaustan fimm til 13 metrum á sekúndu. Léttskýjað verður á Norðaustur- og Austurlandi, en súld eða dálítil rigning öðru hverju sunnan- og vestanlands. Hiti verður á bilinu fjögur til 14 stig, en að 18 stigum á morgun, hlýjast verður fyrir norðan.
Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar þokast nú hæð skammt austur af Færeyjum inn á Norðursjó sem mun stjórna veðrinu á Íslandi næstu daga. „Það er mild suðlæg átt, kaldi eða strekkingur vestantil, annars hægari vindur. Yfirleitt léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en súld eða dálítil rigning af og til sunnan- og vestanlands. Á miðvikudag er síðan spáð rigningu víðast hvar, þó mest um landið vestanvert.“ Á vef Vegagerðar má sjá að greiðfært á að vera um nær allt landið en staða einhverra vega óþekkt. Nánar á vef Vegagerðar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag: Sunnan 5-13 vestantil og súld eða rigning með köflum, en hægari og léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast norðaustanlands. Á þriðjudag: Suðaustan 5-13, skýjað og að mestu þurrt, en bjart norðaustan- og austanlands. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag: Sunnan 8-15 og rigning, einkum um landið vestanvert. Milt veður áfram. Á fimmtudag: Suðvestlæg átt og dálítil súld, en léttir til austanlands. Fer að rigna vestantil um kvöldið, hiti 5 til 13 stig. Á föstudag: Suðvestanátt og skúrir eða él, en þurrt og bjart á Austurlandi. Kólnandi veður. Á laugardag: Útlit fyrir fremur svala sunnanátt með skúrum eða éljum sunnan- og vestantil. Þurrt fyrir norðan og austan.
Veður Færð á vegum Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Innlent Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Skúrir og slydduél en léttskýjað á Norður- og Austurlandi Súld eða rigning og milt veður Allhvöss sunnanátt með rigningu Enn má búast við slyddu eða snjókomu Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Smávegis væta norðantil en bjart sunnantil Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Sjá meira