Davíð Snær með dramatískt sigurmark Smári Jökull Jónsson skrifar 5. apríl 2025 16:17 Davíð Snær Jóhannsson var hetja Álasund í dag. Aalesund Davíð Snær Jóhannsson var hetja liðs Álasunds í dag þegar liðið mætti Sogndal á útivelli í norsku B-deildinni í knattspyrnu. Brynjar Ingi Bjarnason var í liði HamKam sem mætti meisturum Bodö Glimt.
Davíð Snær gekk til liðs við Álasund fyrir rúmu ári síðan frá FH en hann er uppalinn hjá Keflavík. Hann var í byrjunarliði Álasunds í dag sem mætti Sogndal á útivelli en þetta var annar leikur liðanna á tímabilinu í Noregi. Leikurinn var sannkallaður markaleikur. Gestirnir komust yfir á 30. mínútu eftir sjálfsmark heimamanna en Sogndal náði að snúa leiknum sér í vil og leiddi 2-1 í hálfleik eftir tvö mörk á fimm mínútna kafla. Lið Álasund jafnaði metin á 52. mínútu og komst í forystu tuttugu mínútum seinna. Lið Sogndal virtist hins vegar vera að tryggja sér eitt stig í leiknum þegar liðið jafnaði metin á annarri mínútu uppbótartíma en á lokasekúndum leiksins var það Davíð Snær Jóhannsson sem skoraði sigurmarkið í leiknum og tryggði Álasund dramatískan sigur. Davíð Snær skoraði einnig í fyrsta leik Álasund gegn Lilleström og er því kominn með tvö mörk í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins. Brynjar Ingi Bjarnason var í byrjunarliði Ham Kam sem var í heimsókn hjá meisturum Bodö/Glimt. Skemmst er frá því að segja að Bodö/Glimt vann öruggan 3-0 sigur og er því með fullt hús stig eftir tvær umferðir. Ham Kam er með þrjú stig eftir tvo leiki.
Norski boltinn Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Getur Vinicius fengið brasilísku þjóðina til að elska sig? Leggja inn mótmæli vegna meðferðarinnar á Partey Katar - Sviss | Nær Katar að vinna sinn fyrsta leik á HM? HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu „Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni“ „Stelpurnar voru bara geggjaðar“ Á sársaukafullar minningar af HM Uppgjör: FH komið á toppinn Uppgjörið: Sterk viðbrögð Grindavíkur/Njarðvíkur skiluðu mikilvægum sigri Stemningin á Times Square engri lík Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Uppgjör: Markalaust jafntefli þrátt fyrir fjörugan leik Stórsigur í Stokkhómsslagnum Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Verður ekki með í fyrsta leik á HM Æfingatækjum stolið af enska landsliðinu Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli „Hundgamall“ klefafélagi Tómasar spilar á HM Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Páfinn gerður að heiðursfélaga hjá Real Madrid Sjá meira