Grillað ofan í helstu áhrifavalda landsins Polynorth 1. apríl 2025 08:47 Grillmeistarinn og athafnamaðurinn Gísli Rúnar sá til þess að enginn færi svangur úr húsi. Myndir/Axel Þórhallsson. Það var heldur betur fullt út að dyrum í höfuðstöðvum plastverksmiðjunnar Polynorth á Akureyri þegar fyrirtækið hélt upp á fjögurra ára afmæli sitt síðasta föstudag. „
Við ákváðum að bjóða upp á hamborgara og bjór,“ segir Hjörleifur Árnason, eigandi Polynorth. „Enda segir enginn nei við slíkum guðaveigum á föstudegi.“ Vinirnir og hörkutólin Hafþór bóndi, Víðir sterki og Númi íþróttaálfur voru eldhressir að vanda. Það voru hinir raunverulegu áhrifavaldar, eins og hann orðar það, sem skipuðu gestalistann þetta árið. „Iðnaðarmenn eru hinir sönnu áhrifavaldar í íslensku samfélagi. Ég er að tala um smiði, pípara, múrara, rafvirkja og fleira gott fólk. Alvöru starfsstéttir sem hafa alvöru áhrif á samfélagið og halda því raunverulega gangandi. Rjómi Íslands mætti í burger. Frá vinstri eru þeir félagar Ragnar Ingi, Steinar, Orri, Eiríkur, Jón Árni, Fannar og Ragnar Daníel. Grillmeistarinn og athafnamaðurinn Gísli Rúnar sá til þess að enginn færi svangur úr húsi. Þessi góði hópur er ekki í fréttum daglega að auglýsa handtöskur eða nýja skó eins og hinir svokölluðu „áhrifavaldar“ á höfuðborgarsvæðinu heldur eru þeir raunveruleg undirstaða samfélagsins. Og það má alveg geta þess að enginn á landsbyggðinni þekkir þessa svokölluðu „áhrifavalda“ sem vaða hér upp í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Landsbyggðarfólk er fyrir löngu komið með upp í kok af þessu rugli.“ Brauðin voru hituð með sömu vél og notuð er til að steypa frauðplast einangrun. Stjörnuljósmyndarinn Axel Þórhallsson , sem tók m.a. myndir fyrir Séð og heyrt í gamla daga, mætti í hús og tók myndir af grjóthörðum iðnaðarmönnum sem sporðrenndu nokkrum sveittum borgurum og óðu svo af stað aftur að skapa verðmæti fyrir land og þjóð. Einar, eigandi ESS verktaka, gæðir sér á einum sveittum á meðal Alli Filla (AKA Kubburinn) reynir að selja Pétri Karls forláta krosslaser. Bræðurnir Hinrik, Nagli, Jökull og Helgi létu sig ekki vanta, enda upprennandi iðnaðarmenn. Gísli grillmeistari útskýrir fyrir starfsmönnum Polynorth hvernig alvöru hamborgarar eru grillaðir. Númi, Garðar og Draupnir tóku góða pósu. Þeir eru allir smiðir hjá Böggur ehf. en taka að sér fyrirsætustörf í hjáverkum. Júlíus húsasmíðameistari var léttur á því og það voru líka Björn og Orri. Kristófer járnkarl, Ragnar Ingi, Jón Örvar eigandi Böggur ehf. og Einar biðu rólegir eftir að kæmi að þeim við grillið.
Mest lesið Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Lífið Sagði já og baðst í leiðinni afsökunar Lífið „Við löbbum ekki bara og hrösum um Esjuna“ Lífið Keyptu 250 fermetra hús í Andalúsíu á fjörutíu milljónir Lífið „Ég skal rétta þjófinum 60.000 kall og óska honum góðs dags“ Lífið Hætti að drekka og flutti til Balí Lífið „Ég er alltaf þreyttur á sjálfum mér“ Lífið Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Bíó og sjónvarp Verður alltaf meyr þegar hann hugsar um lífsbjörgina Lífið Vatnaskil hjá Draugum fortíðar: „Dálítið sérstakt að upplifa það að rekast á vegg“ Lífið Fleiri fréttir Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira