Stórskotaliðið gerði sitt þegar Norðmenn lögðu Ísrael Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. mars 2025 21:40 Skyttan Martin Ödegaard lagði upp þrjú mörk. Sebastian Frej/Getty Images Noregur vann sannfærandi 4-2 sigur á Ísrael í undankeppni heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu sem fram fer á næsta ári.
Leikið var á Nagyerde-vellinum í Debrecen í Ungverjalandi þar sem Ísrael fær ekki að leika heimaleiki sína í Ísrael. Norðmenn byrjuðu betur og kom vinstri bakvörðurinn David Møller Wolfe, leikmaður AZ Alkmaar í Hollandi, þeim yfir eftir sendingu fyrirliðans Martin Ödegaard. „Heimamenn“ jöfnuðu metin í síðari hálfleik áður en Ödegaard gaf sína aðra stoðsendingu í leiknum. Að þessu sinni fann hann Alexander Sørloth, framherja Atlético Madríd, og Norðmenn komnir yfir á ný. Það voru svo tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni sem komu að þriðja markinu en hvorugur heitir þó Erling Haaland. Sander Berge, leikmaður Fulham, gaf á Kristoffer Ajer, leikmann Brentford, sem kom Noregi 3-1 yfir. Það var svo að sjálfsögðu Haaland sjálfur sem fullkomnaði sigur Norðmanna með fjórða marki þeirra undir lok leiks. Enn og aftur var það Ödegaard sem lagð markið upp, stoðsendingaþrenna frá honum. Í blálok leiksins minnkaði Ísrael muninn. Lokatölur 4-2 Noregi í vil sem hefur þar með unnið báða leiki sína í undankeppni HM til þessa og trónir á toppi I-riðils með sex stig.
Fótbolti HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti Fleiri fréttir Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Czarni - Breiðablik | Þungt verkefni í Póllandi Frankfurt - FH | Tekst FH-ingum aftur að hrella þær þýsku? Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Sjáðu mörkin hjá ungu strákunum gegn Sviss Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ „Við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir „Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Þakklátur Gylfi Þór byrjar í kvöld: „Núna er þetta öðruvísi“ Gylfi Þór kemur inn í byrjunarlið Íslands Sjá meira